Elín Dröfn Valsdóttir er eigandi @home. Ljósm. vaks.

Verslunin @home flytur á nýjan stað

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í þessari viku skrifuðu eigendur verslunarinnar @home á Akranesi undir kaupsamning á hluta húsnæðisins á Kirkjubraut 54 þar sem áður var til húsa Harðarbakaríið til fjölda ára. Alls er þetta um 160 fermetra húsnæði sem þau festa kaup á. Um er að ræða tvö hólf austan megin á neðstu hæð hússins en í vestari endanum er verslunin Krósk með starfsemi sína.\r\n\r\nElín Dröfn Valsdóttir, eigandi @home, segir að þessa dagana sé verið að taka húsnæðið í gegn og á von á því að þau fái afhent um miðjan mars en þá eigi eftir að mála og setja gólfefni. Þau stefni á að opna á nýjum stað í byrjun apríl en leigusamningurinn á Stillholti rennur einmitt út þá. „Ég er ótrúlega spennt fyrir þessu, aðgengið hjá okkur fyrir eldra fólk og fatlaða er alls ekki nógu gott á Stillholtinu og þessi nýja staðsetning er mun betri. Þetta er lífæðin inn í bæinn og á frábærum stað þannig að við hlökkum mikið til að taka á móti okkar viðskiptavinum á nýja staðnum,“ segir Elín Dröfn að lokum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50976\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50976 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/02/Verslunin-@home-flytur-a-nyjan-stad_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Nýja staðsetningin verslunarinnar verður á Kirkjubraut 54.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}