Le Boreal, fyrsta skemmtiferðaskipið sem kom til Akraness, lagðist að bryggju að morgni 31. júlí 2017. Ljósm. úr safni Skessuhorns/bþb

Vilja taka vel á móti gestum skemmtiferðaskipa á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Áfanga- og markaðssvið (Á&amp;M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi ásamt Akraneskaupstað og Faxaflóahöfnum taka nú þátt í samstarfsverkefni um gæði í móttöku á skemmtiferðaskipum á Akranesi. Þetta er NORA verkefni sem kemur í gegnum Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO), þar sem unnið er með nokkrum höfnum á Íslandi, Noregi, Færeyjum og Grænlandi. Verkefnið gengur út á að heimamenn í hverri höfn leggi línurnar um hvernig þeir vilja taka á móti ferþegum skemmtiferðaskipa sem heimsækja svæðið, þannig að gestirnir njóti heimsóknarinnar og samfélagið njóti ávinnings af gestamóttökunni.\r\n\r\n„Það er aukin eftirspurn hjá skemmtiferðaskipum að koma á Akranes, en það er mikil áskorun að taka á móti svona stórum hópum í stuttan tíma og því best að hugsa fyrir öllu strax í upphafi. Við viljum með þessu verkefni stuðla að því að komur skemmtiferðaskipa raski ekki ró íbúa en bæði þeir og þjónustuaðilar geti notið góðs af þessum gestakomum. Því viljum við setja saman móttökupakka og leiðbeiningar með heimamönnum og hagaðilum, til að beina gestunum þangað sem þeir geta upplifað, notið og fengið þjónustu heimafólks í heimsókn sinni í höfn á Akranesi. Við erum svo nálægt Reykjavík og því auðvelt að fá þjónustuaðila þaðan upp á Akranes til að taka á móti gestum og keyra svo í burt með alla farþegana og heimamenn fá bara pústreykinn í sinn hlut. Við viljum því hvetja heimamenn til að koma með okkur í þetta verkefni og taka höndum saman til að útbúa vænlega upplifunar-, þjónustu- og ferðapakka sem eru í höndum heimamanna til að bjóða skipagestum sem koma á Akranes. Okkur er mikið í mun að samfélagið á Akranesi og nágrenni njóti góðs af heimsókn þessara gesta,“ segir Margrét Björk (Maggý) frá Markaðsstofu Vesturlands í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\n<strong>Vilja fá alla með</strong>\r\n\r\nÁ&amp;M bauðst óvænt að taka þátt í þessu NORA - verkefni og vinna að gestamóttöku skipa í Akraneshöfn. Því var ákveðið að nota tækifærið til að hvetja og virkja þjónustuaðila sem eru samstarfsaðilar Markaðsstofu Vesturlands, hvort sem þeir eru á Akranesi, Hvalfirði, Kjós, Borgarfirði eða Borgarnesi til að fara í vöruþróunarverkefni og útbúa ferðapakka sem henta skipafarþegum sem koma á Akranes.\r\n\r\n„Þetta NORA verkefni snýst fyrst og fremst um að heimafólk búi til reglur og leiðbeiningar fyrir skipagesti samkvæmt vilja samfélags þar sem skemmtiferðaskip koma í höfn. Í gegnum verkefnið höfum við aðgang að aðstoð frá verkefnastjóra sem hefur unnið með mörgum höfnum á norðurslóðum við að gera leiðbeiningar til að tryggja ábyrga hegðun farþega skemmtiferðaskipa. Okkur fannst þetta því kjörið tækifæri til að taka þetta verkefni lengra og hvetja þjónustuaðila til samstarfs við að gera ferðapakka til að bjóða skipafarþegum. Við ákváðum því að bjóða upp á sprettverkefni í vöruþróun með okkar samstarfsaðilum til að setja saman nokkra upplifunar-, þjónustu- og ferðapakka sem henta skipafarþegum sem koma í land á Akranesi. Við hjá Markaðsstofu Vesturlands munum svo stuðla að og styðja við markaðssetningu og kynningu á þessum ferðapökkum. Við ætlum því að halda málstofur og kynningarfundi á netinu til að kynna verkefnið og hvetja fólk til að taka þátt og vera með,“ segir Maggý.\r\n\r\nNæsta föstudag, 11. febrúar, verður haldin netkynning þar sem verkefnið í heild verður kynnt. Í framhaldi af því verða svo haldnar tvær málstofur á netinu þar sem fjallað er um tækifæri sem geta falist í móttöku á skipafarþegum. Í byrjun mars verður svo vinnustofa með skráðum hagaðilum þar sem verkefnisstjórinn frá AECO mun koma og leiða vinnuna við gerð leiðbeinandi reglna og móttökuskjals fyrir skipagesti. Eftir þá vinnustofu verður byrjað á sprettverkefni við að setja saman upplifunar- , þjónustu- og ferðapakka með þeim samstarfsaðilum Markaðsstofu Vesturlands sem hafa áhuga á að taka þátt í þessari vinnu. „Reiknað er með að þessu verkefni verði lokið í júní og þá verða vonandi komnir flottir ferðapakkar fyrir skipafarþega og fleiri í kynningu og markaðssetningu á <a href=\"http://www.vesturland.is\">www.vesturland.is</a>,“ segir Maggý að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Vilja taka vel á móti gestum skemmtiferðaskipa á Akranesi - Skessuhorn