"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Áhersla 112 dagsins sem haldinn er um land allt í dag föstudaginn 11. febrúar er að þessu sinni lögð á að vinna gegn hverskonar ofbeldi, en ofbeldishegðun hefur farið vaxandi þau tvö ár sem Covidfaraldurinn hefur geysað.\r\n\r\nÍ tilefni dagsins miðlar Neyðarlínan fræðsluefni á gagnvirku myndbandi um rétt og skilvirk samskipti við neyðarverði sem eru þeir sem svara í símann þegar hringt er í neyðarnúmerið 112 og þess vegna mikilvægustu hlekkirnir í viðbragðinu. Horfa má á myndbandið með því að smella á þennan hlekk (<a href=\"https://www.112.is/112-dagurinn\">https://www.112.is/112-dagurinn) sem beinir inn á síðu <a href=\"http://112.is\">112.is.\r\n\r\nVegna sóttvarnartakmarkana verður dagskrá 112 dagsins streymt á samfélagsmiðlum, á heimasíðu Neyðarlínunnar <a href=\"https://www.112.is/112-dagurinn\">112.is og á heimasíðum samstarfsaðilanna, en dagskráin hefst kl. 12:00 með því að Þórhallur Ólafsson framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar og Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra flytja stutt ávörp. Síðan verða börnum í 4. bekk grunnskóla afhent verðlaun í eldvarnargetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði krossinn útnefnir Skyndihjálparmann ársins og loks verður kynnt gagnvirkt myndband þar sem miðlað er fræðslu um rétt samskipti við neyðarvörð, þegar hringt er í neyðarnúmerið 112. Kynnir á viðburðinum er Jana M. Guðmundsdóttir hjá Neyðarlínunni.\r\n\r\nSamstarfsaðilar Neyðarlínunnar vegna 112 dagsins eru Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Húsnæðis og mannvirkjastofnun, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnarfrélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin, Æskulýðsvettvangurinn og samstarfsaðilar um land allt.\r\n\r\nBeinn linkur :\r\n\r\n<a href=\"https://vimeo.com/event/1819883/embed/6fd6c69e2c\">https://vimeo.com/event/1819883/embed/6fd6c69e2c\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []