FVA keppir í Gettu betur í kvöld

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fjölbrautaskóli Vesturlands mætir til leiks í Gettu betur í kvöld í annarri viðureign átta liða úrslita spurningakeppninnar og mætir þar liði Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Mikil spenna er að magnast upp fyrir viðureign kvöldsins, svo mikil að flugeldum var skotið upp í tilefni þess í gærkvöldi á Akranesi. Í fyrstu umferðinni sigraði Verzlunarskóli Íslands lið Fjölbrautaskóla Suðurlands með 30 stigum gegn 19 en Verzló er handhafi Hljóðnemans, verðlaunagrips Gettu betur, eftir sigur á Kvennaskólanum í Reykjavík í fyrra.\r\n\r\nÞetta er í fimmta sinn í sögu Gettu betur sem FVA kemst í átta liða úrslit en besti árangur skólans náðist árið 2015 þegar skólinn tók þátt í undanúrslitum. Lið FVA í ár skipa þau Kristrún Bára Guðjónsdóttir, Björn Viktor Viktorsson og Sigrún Freyja Hrannarsdóttir.\r\n\r\nBein útsending á Gettu betur á RÚV í kvöld hefst klukkan 20.",
  "innerBlocks": []
}