Í tíundu grein samningsins er kveðið á um að ef bankinn leggi niður útibúið, skuli það sameinast Sparisjóði Dalasýslu.

Sveitarstjórn Dalabyggðar fordæmir lokun bankaútibúsins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveitarstjórn Dalabyggðar fjallaði um fyrirhugaða lokun útibús Arion banka í Búðardal á fundi sínum í gær. Rifjað var upp að forsvarsmenn bankans hafi fullyrt við síðustu breytingar á starfsemi útibúsins að ekki stæði til að loka útibúinu í Búðardal.\r\n\r\nÍ umræðum benti Kristján Sturluson sveitarstjóri á að í fundargögnum væri afrit af samningi sem gerður var á sínum tíma milli Sparisjóðs Dalasýslu og Búnaðarbankans, árið 1965. Þar séu ákvæði um þjónustu og skyldur bankans gagnvart íbúum Dalasýslu. Ekki urðu umræður um þennan gamla samning á fundinum, en áhugavert er að skoða tíundu grein þess samnings, sem kveður á um að ef bankinn leggi niður útibúið, skuli það sameinast Sparisjóði Dalasýslu. Skal ósagt látið hvort samningurinn haldi enn gildi sínu, en forsvarsmenn Sparisjóðsins hafa verið forsjálir á sínum tíma. Hvatti sveitarstjóri til þess að efni samningsins yrði skoðað í samhengi við lokun útibúsins.\r\n\r\nÁ fundinum mátti finna reiði meðal sveitarstjórnarmanna vegna yfirvofandi lokunar og stór orð féllu. Einnig komu fram hugmyndir um þveröfuga stefnu, þ.e. að fjölga störfum bankans án staðsetningar í Búðardal, þar sem húsnæði er mun ódýrara en á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstaða fundarins var að byggðaráð Dalabyggðar haldi umræðunni áfram.",
  "innerBlocks": []
}
Sveitarstjórn Dalabyggðar fordæmir lokun bankaútibúsins - Skessuhorn