
Einangrun vegna Covid-sýkingar verður frá og með deginum í dag stytt úr sjö dögum í fimm samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Sem fyrr verður þó heimilt að framlengja einangrun ef þörf krefur samkvæmt læknisfræðilegu mati. Frá sama tíma er afnumin skylda þeirra til að sæta sóttkví eða viðhafa smitgát sem eru með afstaðna sýkingu, staðfesta með PCR-prófi…Lesa meira








