Fréttir

true

Alþjóðlegur netöryggisdagur er í dag

Í dag, 8. febrúar,  er Alþjóðlegi netöryggisdagurinn haldinn hátíðlegur um allan heim, www.saferinternetday.org  Heimili og skóli benda á að í tilefni dagsins eru fjölmörg áhugaverð verkefni í gangi sem vert er að vekja athygli á. Hér að neðan má sjá lista yfir helstu verkefni. Í ljósi aðstæðna og óvissu um hver staðan yrði vegna heimsfaraldurs var…Lesa meira

true

Snjóar og blint til aksturs í dag

Vegagerðin bendir á að víða vestantil á landinu verður snjókoma í dag og blint til aksturs. Því er spáð að dragi úr ofankomu og vindur verði hægari suðvestanlands síðdegis og verður þá skaplegra veður til aksturs. Áfram verður hvasst með éljum á Vestfjörðum.Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Hálsasveit

Rafmagnsbilun er í gangi frá Hofstöðum að Augastöðum í Hálsasveit, en verið er að leita að bilun. “Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt Rarik á Vesturlandi í síma 528 9390,” segir í tilkynningu. Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá…Lesa meira

true

Rafmagnsleysi á Mýralínu

Rarik tilkynnir að rafmagnsbilun er í gangi frá Vatnshömrum að Hítará. „Verið er að leita að bilun. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528 9390,“ segir í tilkynningu.  Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá á…Lesa meira

true

Aþena tapaði eftir fimm sigurleiki í röð

Hið unga og efnilega lið Aþenu-UMFK sem leikur heimaleiki sína í 1. deild kvenna í körfuknattleik á Akranesi mætti liði Hamars/Þórs á laugardagskvöldið í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Aþena hafði unnið sína síðustu fimm leiki í deildinni og var á góðu skriði. Það má með sanni segja að fyrsti leikhluti leiksins hafi orðið Aþenu að falli…Lesa meira

true

Efla rannsóknir á sviði jarðræktar og umhverfisvísinda

Innviðasjóður styrkir tækjakaup vísindamanna við Landbúnaðarháskóla Íslands. Hlutverk sjóðsins er að fjármagna kaup á rannsóknartækjum, uppbyggingu rannsóknarinnviða og aðgangs að þeim. Sjóðurinn er ætlaður háskólum, opinberum rannsóknastofnununum og fyrirtækjum. Að þessu sinni hlutu tvö verkefni vísindamanna innan Landbúnaðarháskólans styrki. Sjálvirk veðurstöð Jarðræktarmiðstöð Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Hvanneyrarbúið hlaut styrk til…Lesa meira

true

Sorprit

MTH útgáfa á Akranesi gefur úr hljóðbókina „Sorprit – og fleiri sögur,“ smásögur eftir Kristján Kristjánsson, í lestri Kristjáns Franklín Magnúsar. Verkið samanstendur af sögum sem Kristján Kristjánsson samdi á síðasta áratug síðustu aldar. Þær eiga það flestar sameiginlegt að fjalla um einfara, suma hverja sem standa á jaðri samfélagsins og rata í ófyrirséðar aðstæður.…Lesa meira

true

Ætlar að beita sér fyrir því að RÚV fari af auglýsingamarkaði

Blaðamannafélag Íslands gekkst í dag fyrir ráðstefnu um stöðu fjölmiðla á markaði. Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður BÍ flutti þar ávarp en Lilja Dögg Alfreðsdóttir ráðherra málefna fjölmiðla var næst í pontu. Um fjárhagsstöðu einkarekinna fjölmiðla færði Lilja í tal ójafna stöðu íslenskra fjölmiðla gagnvart annars vegar erlendum efnisveitum, sem ekki þurfa að innheimta skatt af…Lesa meira

true

Þetta er ekki búið – gul viðvörun tekur gildi í kvöld

Gul viðvörun tekur gildi um allt vestanvert landið í kvöld klukkan 18 og gildir hún m.a. á Faxaflóasvæðinu í rúman sólarhring, fram yfir miðnætti á morgun. Spáð er suðvestan 13-20 m/s og talsverðum éljum á því spásvæði. Viðbúið er að hvassara verði í éljahryðjum og gætu vindhviður farið yfir 35 m/s staðbundið. Skafrenningur og auknar…Lesa meira

true

Fjör í fimleikum á Akranesi um helgina

Um síðustu helgi fór fram GK mótið í hópfimleikum og Haustmótið í stökkfimi í fimleikahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Meistaraflokkur kvenna hjá Fimleikafélagi Akraness náði góðum árangri á mótinu. Þær urðu í fyrsta sæti í gólfæfingum og á dýnu og lentu í öðru sæti í samanlögðum árangri á eftir Gerplu úr Kópavogi. Þá lenti 2.…Lesa meira