Samhæfingarmiðstöð Almannavarna og aðgerðastjórnstöðvar virkjaðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mikill viðbúnaður er vegna óveðursins sem fram undan er út um allt land í nótt og fyrramálið. Í dag funduðu Almannavarnir með sérfræðingum Veðurstofunnar, viðbragðsaðilum, ábyrgðaraðilum raforku, fjarskipta og samgangna. Einnig voru á fundinum fulltrúar úr aðgerðastjórnun almannavarna um land allt. Farið var yfir veðurspár og til hvaða viðbúnaðar þarf að grípa þegar óveðrið skellur á.\r\n\r\nMiklar líkur eru á foktjóni og ófærð innan hverfa á höfuðborgarsvæðinu. Fólk er hvatt til þess að ganga vel frá lausum munum og verktakar beðnir að ganga vel frá framkvæmdasvæðum. Vegagerðin hefur ákveðið að loka vegum vegna veðursins, hægt er að fylgjast með lokunum á heimasíðu Vegagerðarinnar.\r\n\r\nForeldrar eru beðnir að fylgast með hvernig skólahaldi verður háttað, nú þegar hafa einhverjir skólar ákveðið að hafa lokað á morgun.\r\n\r\nEins og fram hefur komið þá hefur Veðurstofa Íslands fært veður viðvörun sína upp á rautt fyrir höfuðborgarsvæðið. Spáð er suðaustan roki eða ofsaveðri, 23-30 m/s með snjókomu og skafrenningi en slyddu næst sjávarsíðunni. Hvassast í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins og á Kjalarnesi.\r\n\r\nVegna óveðursins þá hefur Ríkislögreglustjóri í samráði við alla lögreglustjóra á landinu ákveðið að lýsa yfir hættustigi almannavarna frá miðnætti í kvöld. Almannavarnir halda áfram að fylgjast vel með og miðla upplýsingum til fjölmiðla um stöðuna í öllum landshlutum.\r\n\r\nAlmannavarnir geta virkjað þrjú stig í áætlun sinni: Óvissustig, hættustig og svo neyðarstig. Hættustig er virkjað þegar fólki, umhverfi eða byggð er ógnað, þó ekki svo alvarlega að um neyðarástand sé að ræða.\r\n\r\nHér er hægt að fylgjast með <a href=\"https://www.vedur.is/vidvaranir\">framvindu veðursins</a> á vef Veðurstofu Íslands\r\nHér er hægt að fylgast með <a href=\"http://www.vegagerdin.is/ferdaupplysingar/faerd-og-vedur/allt-landid-faerd-kort/\">vegum og lokunum</a> hjá Vegagerðinni.\r\nHér er hægt að fylgjast með <a href=\"http://www.sjolag.i/\">ölduhæð á vef</a> Vegagerðarinnar.",
"innerBlocks": []
}
Samhæfingarmiðstöð Almannavarna og aðgerðastjórnstöðvar virkjaðar - Skessuhorn