Fréttir

true

Akraneskaupstaður er 80 ára í dag

Í dag, miðvikudaginn 26. janúar, eru rétt 80 ár frá fyrsta bæjarstjórnarfundinum á Akranesi en bærinn öðlaðist kaupstaðarréttindi árið 1942. Af því tilefni hélt bæjarstjórn Akraness sérstakan hátíðarfund síðdegis í gær, en vegna sóttvarna fór hann fram í streymi. Á þessum 80 árum hafa 22 bæjarstjórnir setið við völd, en ein þeirra sat aðeins um…Lesa meira

true

Valþúfa á hjara veraldar

Í síðustu viku vaknaði Rúna Blöndal bóndi á Valþúfu á Fellsströnd í Dölum öskureið. Hún gat ekki sofnað aftur án þess að losa um eitthvað af bræðinni. Hún skrifaði því langan pistil. Í morgunsárið eftir að hafa lesið pistilinn yfir ákvað hún að koma honum frá sér. Umfjöllunarefnið var algjört sambandsleysi bæjarins við umheiminn, vegna…Lesa meira

true

Hefur alla tíð haft mikinn áhuga á fjármálum og er nú sjálfstætt starfandi fjármálaráðgjafi

Sólveig Ragnheiður Gunnarsdóttir er fædd og uppalin á Hvanneyri í Borgarfirði, dóttir Gunnars Arnar Guðmundssonar dýralæknis og Elísabetar Haraldsdóttur, leirlistakonu, fyrrum skólastjóra Andakílsskóla og menningarfulltrúa Vesturlands. „Ég á líka tvo bræður og ég held nú að við höfum öll spilað körfu með Skallagrími á einhverjum tímapunkti. Ég var líka að keppa á hestum með Faxa…Lesa meira

true

NOVIS deildin í pílu hófst um helgina

Um síðustu helgi fór fram 1. umferð í NOVIS deildinni í pílu sem haldin er af Íslenska pílukastsambandinu. Deildin er hönnuð fyrir pílukastara á öllum sviðum íþróttarinnar og er sett þannig upp að keppendur fá marga keppnisleiki og alla við leikmenn með svipað getustig. Fyrsta umferðin var haldin á sunnudaginn á Bullseye við Snorrabraut í…Lesa meira

true

Jarðskjálfti upp á 3,3 stig á Þóreyjartungum

Mikill fjöldi jarðskjálfta hefur síðustu daga fundist á svæðinu milli Reyðarvatns í Lundarreykjadals og Húsafells síðustu daga. Þetta svæði er ofan við byggð og jafnan kallað Þóreyjartungur. Á sjöunda tímanum í kvöld varð svo skjálfti sem mældist 3,3 stig og fannst hann vel m.a. á bæjum í Hálsasveit. Það staðfestir Snorri Jóhannesson á Augastöðum í…Lesa meira

true

Slaka á reglum um sóttkví

Á miðnætti í kvöld taka gildi verulegar tilslakanir á reglum um sóttkví. Einstaklingar sem hafa orðið útsettir fyrir smiti utan heimilis eða dvalarstaðar þurfa ekki lengur að fara í sóttkví en fara þess í stað í smitgát. Áfram þarf að fara í sóttkví ef einstaklingur verður útsettur fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar nema ef…Lesa meira

true

630 ýmist í sóttkví eða einangrun á Vesturlandi

Tölur frá Lögreglunni á Vesturlandi sýna ótvírætt að kórónaveiru faraldurinn er langt í frá genginn yfir, þótt yfirvöld boði nú verulegar afléttingar sóttvarnaráðstafana. Nú eru 630 manns á Vesturlandi ýmist í sóttkví eða einangrun með veiruna. Á Akranesi eru 128 í einangrun og 227 í sóttkví. Í Borgarnesi eru 80 í einangrun og 83 í…Lesa meira

true

Sundabraut leiðir af sér 200 milljarða króna ábata fyrir samfélagið

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tóku í gær formlega við óháðri félagshagfræðilegri greiningu á lagningu Sundabrautar og skilagrein starfshóps Vegagerðarinnar um lagningu Sundabrautar. Greiningin leiðir í ljós 186-238 milljarða króna ábata fyrir samfélagið eftir útfærslu Sundabrautar með Sundabrú eða jarðgöngum. Mestur ábati felst í minni akstri, útblæstri og mengun og styttri…Lesa meira

true

Unglingadeild stofnuð hjá Brák

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi ætlar í næsta mánuði að fara af stað með nýja deild fyrir unglinga á aldrinum 14-17 ára, en frá þessu er greint á Facebook síðu sveitarinnar. Í unglingadeildinni fá meðlimir að kynnast ýmsum störfum björgunarsveita auk þess sem veitt verður fræðsla um útivist allan ársins hring og farið yfir öryggismál og…Lesa meira

true

Færð mun spillast á fjallvegum

Í tilkynningu frá Vegagerðinni er varað við að færð á vegum gæti spillst samhliða vestan lægð sem gengur yfir landið í dag. „Norður í land og vestur á firði versnar veður síðdegis. Það verða 20-24 m/s, hríðarveður um tíma með blindu. Þetta á m.a. við á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku frá því upp úr hádegi í…Lesa meira