Jarðskjálfti upp á 3,3 stig á Þóreyjartungum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Mikill fjöldi jarðskjálfta hefur síðustu daga fundist á svæðinu milli Reyðarvatns í Lundarreykjadals og Húsafells síðustu daga. Þetta svæði er ofan við byggð og jafnan kallað Þóreyjartungur. Á sjöunda tímanum í kvöld varð svo skjálfti sem mældist 3,3 stig og fannst hann vel m.a. á bæjum í Hálsasveit. Það staðfestir Snorri Jóhannesson á Augastöðum í samtali við Skessuhorn. Hann segir að húsið hjá sér hafi hrist og hundurinn hans tekið að spangóla. Tveir aðrir skjálftar yfir þrír á stig hafa mælst á þessu sama svæði í mánuðinum. Á liðinni viku hafa um 160 jarðskjálftar verið mældir þar.",
  "innerBlocks": []
}
Jarðskjálfti upp á 3,3 stig á Þóreyjartungum - Skessuhorn