{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag, miðvikudaginn 26. janúar, eru rétt 80 ár frá fyrsta bæjarstjórnarfundinum á Akranesi en bærinn öðlaðist kaupstaðarréttindi árið 1942. Af því tilefni hélt bæjarstjórn Akraness sérstakan hátíðarfund síðdegis í gær, en vegna sóttvarna fór hann fram í streymi. Á þessum 80 árum hafa 22 bæjarstjórnir setið við völd, en ein þeirra sat aðeins um nokkurra mánaða skeið þar sem ekki náðist niðurstaða um myndun meirihluta og var því kosið að nýju.\r\n\r\nValgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akraness, minntist þess á fundinum í gær að fyrsti bæjarstjórnarfundurinn á Akranesi hafi farið fram 26. janúar 1942. Af því tilefni las hann úr fyrstu fundargerð bæjarstjórnar. Sagði hann jafnframt að sérstakur hátíðarfundur bæjarstjórnar verði haldinn síðar á þessu ári þegar aðstæður í samfélaginu bjóða upp á slíkt. Jafnframt er í undirbúningi hjá menningar- og safnanefnd ýmsir viðburðir í bæjarfélaginu á afmælisárinu og verða þeir kynntir síðar.",
"innerBlocks": []
}