{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á miðnætti í kvöld taka gildi verulegar tilslakanir á reglum um sóttkví. Einstaklingar sem hafa orðið útsettir fyrir smiti utan heimilis eða dvalarstaðar þurfa ekki lengur að fara í sóttkví en fara þess í stað í smitgát. Áfram þarf að fara í sóttkví ef einstaklingur verður útsettur fyrir smiti innan heimilis eða dvalarstaðar nema ef viðkomandi er þríbólusettur, þá þarf að viðhafa smitgát sem lýkur með sýnatöku. Börn á leik- og grunnskólaaldri verða undanþegin smitgát.\r\n\r\nReglur fyrir sóttkví verða þannig að einstaklingar sem verða útsettir á heimili og eru ekki þríbólusettir verða áfram að fara í fimm daga sóttkví sem lýkur með neikvæðu PCR prófi. Ef ekki er hægt að viðhafa fullan aðskilnað frá smituðum einstaklingi á heimilinu lýkur sóttkví með PCR prófi degi eftir að sá smitaði hefur lokið einangrun.\r\n\r\nReglur um smitgát verða þannig að einstaklingar sem verða útsettir fyrir smiti utan heimilis skulu bera grímu í margmenni og þegar ekki er hægt að viðhafa tveggja metra nándarreglu, úti og inni. Viðkomandi skulu forðast staði þar sem margir eru og sleppa umgengni við viðkvæma einstaklinga. Smitgát verður í fimm daga en ekki þarf að fara í sýnatöku að henni lokinni nema þríbólusettir einstaklingar sem hafa orðið útsettir á heimili. Börn á leik- og grunnskólaaldri þurfa ekki að fara í smitgát en þurfa að fara í sóttkví ef smit greinist á heimilinu.",
"innerBlocks": []
}