
Á nákvæmlega þessum stað í fjárhúsunum er stundum hægt að ná farsímasambandi á Valþúfu. Rúna Blöndal er sem betur fer fim.
Valþúfa á hjara veraldar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í síðustu viku vaknaði Rúna Blöndal bóndi á Valþúfu á Fellsströnd í Dölum öskureið. Hún gat ekki sofnað aftur án þess að losa um eitthvað af bræðinni. Hún skrifaði því langan pistil. Í morgunsárið eftir að hafa lesið pistilinn yfir ákvað hún að koma honum frá sér. Umfjöllunarefnið var algjört sambandsleysi bæjarins við umheiminn, vegna bilunar á ljósleiðara, sem henni hafði verið sagt að tæki 3 - 5 daga að gera við. Hún fór út í fjárhús, þar sem hún er stundum svo heppin að hafa farsímasamband í einu horni einnar króar og sendi pistilinn á Facebook, upp á von og óvon, því það er duttlungum háð hvort hún nær farsímasambandi yfir fjörðinn eða ekki. Stundum gæti vissulega verið skilvirkara að senda reykmerki eins og indíánar gerðu forðum með árangri.\r\n\r\n<em>Sjá áhugavert viðtal við Rúnu í Skessuhorni sem var að koma út. </em>",
"innerBlocks": []
}