Fréttir

true

Rafmagn tekið af fjórum götum á Akranesi í nótt

Samkvæmt tilkynningu frá Veitum á Akranesi verður rafmagnslaust aðfararnótt 14. janúar, föstudagsnótt, í fjórum götum á Akranesi. Um er að ræða göturnar Dalbraut, Þjóðbraut, Skarðsbraut og Vallarbraut. Þetta kemur fram á vefsíðu Akraneskaupstaðar. Áætlað er að viðgerð standi yfir frá kl. 00.30-4.30. „Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Erlendum ríkisborgurum fjölgar

Alls voru 54.905 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 9. janúar síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.527 frá 1. desember 2020, eða um 6,9%. Erlendir ríkisborgarar eru því við upphaf ársins 14,6% landsmanna. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 4.102 einstaklinga, eða um 1,3%.…Lesa meira

true

MB komst ekki áfram í Gettu betur

Menntaskóli Borgarfjarðar og Menntaskólinn á Tröllaskaga á Ólafsfirði áttust við í fyrstu umferð Gettu betur í gærkvöldi. Þeirri viðureign lauk með sigri Menntaskólans á Tröllaskaga 11-7 og er þetta í fyrsta sinn sem skólinn kemst í aðra umferð Gettu betur. Þá tryggðu Kvennaskólinn, Menntaskólinn í Reykjavík og Borgarholtsskóli sér einnig sæti í annarri umferð. Nú…Lesa meira

true

Sjötíu ára rekstri Brauðgerðar Ólafsvíkur hætt

Bakarí er nú ekki lengur starfrækt í Ólafsvík. Óhætt er að segja að því fylgi söknuður fyrir bæjarbúa að missa þessa þjónustu, en Brauðgerð Ólafsvíkur hefur verið hluti af fyrirtækjaflóru bæjarins í sjö áratugi. Sannkallað handverksbakarí, hvort sem átt er við brauð, vínarbrauð, kökur eða annað. Handverk þar sem ekki hefur verið bakað í sjálfvirkjum…Lesa meira

true

Heilsu- og menningarstyrkir til öryrkja og eldri borgara

Borgarbyggð styrkir frístunda- og menningariðkun öryrkja og eldri borgara með framlagi í formi árskorta í íþróttamannvirki Borgarbyggðar og í Safnahúsið. Þetta kemur fram á vefsíðu Borgarbyggðar. Markmið framlagsins er að hvetja öryrkja og eldri borgara til að taka þátt í heilsueflandi athöfnum og í menningarlífi í sveitarfélaginu. Hægt er að nýta heilsu- og menningarstyrkinn í…Lesa meira

true

Lið FVA komst áfram í Gettu betur

Í gærkvöldi tryggði lið Fjölbrautaskóla Vesturlands sér keppnisrétt í annarri umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, með fræknum sigri á liði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Lið FVA tók strax afgerandi forystu í viðureigninni. Eftir hraðaspurningar var staðan 16-7, FVA í vil, og að loknum bjölluspurningum voru úrslitin ljós, 24-17 fyrir FVA. Liðið skipa þau Kristrún Bára Guðjónsdóttir, Björn…Lesa meira

true

Allir reyndust neikvæðir í Brákarhlíð

Eins og sagt var frá í Skessuhorni kom upp Covid smit í starfsmannahópi á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi um miðja síðustu viku. Fram kemur á facebook síðu Brákarhlíðar í gær að á mánudaginn, 10. janúar, hafi verið tekin PCR sýni hjá öllu heimilisfólki fyrir utan þá sex heimilismenn sem greindust með Covid í…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd með úthlutun í næstu viku

Janúarúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram miðvikudaginn 19. janúar frá kl. 13-16 í Jónsbúð við Akursbraut 11. „Umsækjendur geta sótt um mánudaginn 17. janúar og þriðjudaginn 18. janúar frá kl. 11-13 í síma 859-3000 og 859-3200 og á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com  Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn gögnum og það er staðgreisluskrá sem fæst á skrifstofu…Lesa meira

true

Skólahald slegið af á hádegi í Snæfellsbæ

Færð tók að spillast á utanverðu Snæfellsnesi fyrir hádegi og var tekin ákvörðun af öryggisástæðum að hætta skólahaldi á hádegi í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Nemendur voru ekki fluttir á milli starfsstöðva, eins og vaninn er, heldur ekið heim.Lesa meira

true

Ekki fyrirhugað að loka FB síðu Lögreglunnar á Vesturlandi

Eins og fram kom í frétt hér á síðunni í morgun hefur Lögreglan á Suðurnesjum ákveðið að loka Facebook síðu embættisins. Ástæðan er sögð sú að persónuvernd sé embættinu kappsmál og lögð áhersla á að öll meðferð persónuupplýsinga sé í samræmi við kröfur persónuverndarlaga. Persónuvernd hafði gert athugasemdir við notkun lögreglu hér á landi á…Lesa meira