{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Alls voru 54.905 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 9. janúar síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.527 frá 1. desember 2020, eða um 6,9%. Erlendir ríkisborgarar eru því við upphaf ársins 14,6% landsmanna. Á sama tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum sem eru með skráða búsetu hér á landi um 4.102 einstaklinga, eða um 1,3%. Pólskum ríkisborgurum fjölgaði á ofangreindu tímabili um 227 einstaklinga og voru 21.096 talsins um síðustu mánaðamót, eða 5,6% landsmanna.",
"innerBlocks": []
}