Fréttir

true

Úthlutað úr Lista- og menningarsjóði Stykkishólms

Stjórn Lista- og menningarsjóðs Stykkishólms kom saman til fundar föstudaginn 7. janúar síðastliðinn í ráðhúsi bæjarins. Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn snemma í desember og var umsóknarfrestur til 4. janúar. Alls bárust sjö umsóknir í sjóðinn en þetta kemur fram á vefsíðu Stykkishólmsbæjar. Stjórnin fór yfir umsóknir og var niðurstaða stjórnar um úthlutun eftirfarandi:…Lesa meira

true

Bruni í Brekkubæjarskóla – myndir

Allur tiltækur mannskapur Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallaður til klukkan 21:15 í kvöld vegna elds í kjallara Brekkubæjarskóla við Vesturgötu á Akranesi. Mikill eldur var þá í smíðastofu á neðstu hæð í vesturenda hússins, næst sjúkrahúsinu. Slökkvistarf gekk mjög greiðlega fyrir sig og var búið að slökkva eldinn fyrir klukkan tíu. Hófst þá þegar…Lesa meira

true

Búið að slökkva eldinn

Búið er að slökkva eld sem kviknaði í Brekkubæjarskóla við Vesturgötu á Akranesi í kvöld og gekk slökkvistarf hratt og vel fyrir sig. Slökkviliðið er nú að ganga úr skugga um að engin glóð sé í húsinu og beitir til þses hitamyndavél. Einnig er verið að reykræsta húsið. Kennslustofan sem eldur kom upp í hefur…Lesa meira

true

Bruni í Brekkubæjarskóla

Mikill viðbúnaður er nú á Akranesi vegna elds í Brekkubæjarskóla við Vesturgötu. Eldurinn er á neðstu hæð í vestanverðum skólanum, í smíðastofu. Slökkvistarf stendur nú yfir.      Lesa meira

true

Björg kom Guðmundi til bjargar

Björgunarbáturinn Björg í Rifi var kallaður út á þriðja tímanum í dag til að koma dragnótarbátnum Guðmundi Jenssyni SH til aðstoðar, en báturinn hafði fengið dragnótarpokann í skrúfuna. Björg tók Guðmund í tog til hafnar í Ólafsvík og gekk heimferðin vel þrátt fyrir vestan sjó. Þessa stundina er Víðir Haraldsson kafari að vinna við að…Lesa meira

true

Kennarar felldu kjarasamning

Mikill meirihluti félagsmanna í Félagi grunnskólakennara hefur fellt nýjan kjarasamning FG og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Nei sögðu 73,71% en já 24,82%. Kjörsókn var 69 prósent, en 3.529 af 5.092 félagsmönnum KÍ greiddu atkvæði. Skrifað var undir kjarasamninginn 30. desember síðastliðinn.Lesa meira

true

Fækkar í einangrun á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu að birta nýjar tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum. Í einangrun eru nú 189 í einangrun og fækkar um 24 frá því í fyrradag. Nú eru 186 í sóttkví og fækkar sömuleiðis. Í Borgarnesi eru nú 73 í einangrun og 58 í sóttkví; á Akranesi…Lesa meira

true

Góð afkoma af lottóinu

Íslensk getspá hefur ákveðið að greiða eigendum sínum 300 milljónir króna í aukagreiðslu vegna góðrar afkomu af lottóspili á síðasta ári. Eigendur Íslenskrar getspár eru þrír. Það eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), sem á 46,67% hlut, Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) á 40% og UMFÍ 13,33%. Í tilkynningu frá UMFÍ kemur fram að félagið fái rétt…Lesa meira

true

Yfir ellefu hundrað manns greindust innanlands í gær

Alls greindist 1.101 einstaklingur með kórónuveiruna innanlands í gær og 105 á landamærum. 46% þeirra sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu og 54% utan sóttkvíar. 1.135 greindust innanlands á þriðjudag og 1.191 á mánudag. 9.815 eru nú í einangrun vegna Covid-19 en voru 10.033 í gær. 9.769 einstaklingar eru í sóttkví og fækkar…Lesa meira

true

Marvin Darri fer frá Víkingi Ólafsvík í Vestra

Vestri frá Ísafirði, sem leikur í Lengudeildinni í knattspyrnu undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar, hefur gengið frá samningi við Skagamanninn Marvin Darra Steinarsson. Marvin Darri er tvítugur og kemur hann til Vestra frá Víkingi Ólafsvík þar sem hann var aðalmarkvörður liðsins síðasta sumar. Hann spilaði 16 leiki þegar Víkingur féll úr Lengjudeildinni síðasta sumar en…Lesa meira