{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Allur tiltækur mannskapur Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallaður til klukkan 21:15 í kvöld vegna elds í kjallara Brekkubæjarskóla við Vesturgötu á Akranesi. Mikill eldur var þá í smíðastofu á neðstu hæð í vesturenda hússins, næst sjúkrahúsinu. Slökkvistarf gekk mjög greiðlega fyrir sig og var búið að slökkva eldinn fyrir klukkan tíu. Hófst þá þegar vinna við að reykræsta húsið. Hitamyndavél var beitt til að útiloka að glæður leyndust innan dyra. Engan sakaði. Ljóst er að mikið tjón hefur orðið, en lán í óláni þykir að húsnæðið hefur staðið ónotað síðustu mánuði og var fyrir dyrum að hefja viðgerðir á því sökum rakaskemmda. Lögregla mun rannsaka ástæður þess að eldur kom upp.\r\n\r\nSkólahald fellur niður í Brekkubæjarskóla á morgun, föstudag.\r\n\r\n<em>Meðfylgjandi myndir voru teknar á vettvangi frá klukkan 21:20 til 22:15 í kvöld og tala sínu máli.</em>\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"50275,50276,50277,50278,50279,50280,50281,50282,50283\"]",
"innerBlocks": []
}