Yfir ellefu hundrað manns greindust innanlands í gær
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Alls greindist 1.101 einstaklingur með kórónuveiruna innanlands í gær og 105 á landamærum. 46% þeirra sem greindust innanlands voru í sóttkví við greiningu og 54% utan sóttkvíar. 1.135 greindust innanlands á þriðjudag og 1.191 á mánudag. 9.815 eru nú í einangrun vegna Covid-19 en voru 10.033 í gær. 9.769 einstaklingar eru í sóttkví og fækkar úr 10.063. 758 eru í skimunarsóttkví, 44 sjúklingar eru á sjúkrahúsi með Covid-19 og þar af sex á gjörgæslu. Vitað er um 622 endursmit.\r\n\r\nÞetta kemur fram í uppfærðum tölum á upplýsingavefnum covid.is. Karlmaður á tíræðisaldri lést á Landspítala í gær af völdum Covid-19. 43 hafa nú látist af völdum sjúkdómsins hér á landi frá upphafi faraldursins. 43.768 staðfest smit hafa greinst frá upphafi faraldursins hér á landi. Þá hafa um 12% íbúa landsins greinst með Covid-19 samkvæmt tölum almannavarna.",
"innerBlocks": []
}
Yfir ellefu hundrað manns greindust innanlands í gær - Skessuhorn