{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Stjórn Lista- og menningarsjóðs Stykkishólms kom saman til fundar föstudaginn 7. janúar síðastliðinn í ráðhúsi bæjarins. Auglýst var eftir umsóknum í sjóðinn snemma í desember og var umsóknarfrestur til 4. janúar. Alls bárust sjö umsóknir í sjóðinn en þetta kemur fram á vefsíðu Stykkishólmsbæjar.\r\n\r\nStjórnin fór yfir umsóknir og var niðurstaða stjórnar um úthlutun eftirfarandi: Norska húsið o.fl. fékk 300 þúsund króna styrk vegna Miðstöðvar og mangarar - Útiskiltasýning, Anna Sigríður Melsteð fékk 450 þúsund krónur vegna Saga og menning, 3. áfangi - rafræn miðlun, Skógræktarfélag Stykkishólms fékk 400 þúsund krónur vegna Saga Skógræktarfélags Stykkishólms og Sólveig Ásgeirsdóttir fékk 50 þúsund króna styrk vegna bókaútgáfu.",
"innerBlocks": []
}
Úthlutað úr Lista- og menningarsjóði Stykkishólms - Skessuhorn