Góð afkoma af lottóinu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Íslensk getspá hefur ákveðið að greiða eigendum sínum 300 milljónir króna í aukagreiðslu vegna góðrar afkomu af lottóspili á síðasta ári. Eigendur Íslenskrar getspár eru þrír. Það eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), sem á 46,67% hlut, Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) á 40% og UMFÍ 13,33%. Í tilkynningu frá UMFÍ kemur fram að félagið fái rétt tæpar 40 milljónir króna í sinn hlut og greiði út 17. janúar næstkomandi. Upphæðin rennur að langstærstum hluta til sambandsaðila UMFÍ og að hluta í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ en hvoru tveggja styður við grasrótarstarfið um allt land.",
  "innerBlocks": []
}
Góð afkoma af lottóinu - Skessuhorn