Fréttir

true

Skagamenn fengu skell gegn Hattarmönnum

ÍA og Höttur mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fyrir leik var lið ÍA á botninum með tvö stig en Höttur í þriðja sætinu með 20 stig og í mikilli baráttu við Hauka og Álftanes um sæti í efstu deild. Það sást fljótt í…Lesa meira

true

Samþykkja afslátt eldri borgara af fasteignasköttum

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samþykkt afslátt af fasteignaskatti vegna tekna elli- og örorkulífeyrisþega, sem eiga lögheimili í Borgarbyggð og búa í eigin húsnæði. Hjá hjónum og sambýlisfólki ræður aldur þess er fyrr verður 67 ára hvort veittur er afsláttur. Afsláttur ræðst af tekjum undanfarins árs og er reiknaður til bráðabirgða við álagningu út frá öllum skattskyldum…Lesa meira

true

Vilja að tíu íbúðir við Þjóðbraut verði í húsnæðissjálfseignarstofnun

Bæjarráð Akraness hefur samhljóma samþykkt að fela bæjarstjóra að fara í viðræður við fulltrúa Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um að væntanleg húsnæðissjálfseignarstofnun, sem ætlað er það hlutverk að stuðla að uppbyggingu almennra íbúða á landsbyggðinni, sæki um stofnframlag vegna kaupa á tíu íbúðum á Akranesi. Þær verði í fjölbýlishúsum sem nú eru í byggingu við Þjóðbraut…Lesa meira

true

Nýtt bílastæði fyrir göngufólk á Hafnarfjall

Hafnarfjall er óðum að verða eitt vinsælasta útivistarsvæði Vesturlands. Umferð göngufólks á fjallið fer stöðugt vaxandi og því lá beint við það yrði eitt af fyrstu verkefnum Ferðafélags Borgarfjarðar að bæta aðstæður fyrir göngufólk á þessu svæði. „Síðasta sumar var leiðin upp á Hafnarfjall stikuð og farið langt með að hreinsa í burtu ónýtar girðingar.…Lesa meira

true

Grunnskólakennarar semja við sveitarfélögin

Daginn fyrir gamlársdag skrifuðu Félag grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir nýjan kjarasamning. Samningurinn var undirritaður með rafrænum hætti hjá embætti ríkissáttasemjara. Gildistími er frá 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. „Þetta er í fyrsta sinn sem Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrita nýjan kjarasamning áður en gildandi samningur rennur út. Nýr…Lesa meira

true

Nýgengi smita aldrei verið hærra

Nýgengi kórónuveirusmita innanlands er nú komið í 3.405 á hverja hundrað þúsund íbúa. Samanlagt eru nú 18.245 ýmist í sóttkví eða einangrun í landinu, eða rífleg fimm prósent þjóðarinnar. 10.161 eru í einangrun og 8.084 í sóttkví. Í gær voru 1.175 smit greind og þar af 102 á landamærunum. 37 eru á sjúkrahúsi með veiruna,…Lesa meira

true

Jólaskap margra Skagamanna kemur með stjörnunni

Jólastjarnan sem sett er á sementsgeymana hjá Sementsverksmiðjunni í desember ár hvert kemur mörgum Skagamanninum í jólaskapið. Yfirleitt er það fastur liður að kveikt er á stjörnunni 12. desember ár hvert og tengist það því að á þeim degi kemur fyrsti jólasveinninn til byggða. Margir hafa haldið því fram að stjarnan hafi verið fyrsta jólalýsingin…Lesa meira

true

Skipstjóraskipti á Ólafi Bjarnasyni

Orri Magnússon hefur tekið við sem skipstjóri á netabátnum Ólafi Bjarnasyni SH af föður sínum Magnúsi Jónassyni. Magnús hefur stýrt Ólafi í sex ár og þar áður var Björn Erlingur Jónasson skipstóri í 42 ár, eða frá því að Ólafur Bjarnason SH kom nýr til Ólafsvíkur frá Akranesi árið 1973. Orri var í sinni jómfrúarferð…Lesa meira

true

Grunnskólinn í Grundarfirði er 60 ára í dag

Í dag á Grunnskóli Grundarfjarðar 60 ára afmæli, en það var 6. janúar árið 1962 sem nýtt húsnæði Barnaskóla Grafarness „á holtinu“ var vígt. Kennsla hófst svo tveimur dögum síðar. Á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar er tímamótanna minnst og þar er hægt að finna skemmtilegt safn mynda Bæringsstofu um byggingartíma skólahússins og skólastarfið fyrstu árin. Aðstæður nú…Lesa meira

true

Svandís í beinni í hádeginu – hægt að senda inn spurningar

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, verður í Beinni línu á Facebook-síðu sinni og VG í hádeginu í dag, 7. janúar klukkan 12:00. „Þetta er kjörið tækifæri til að spyrja ráðherra út í hvaðeina sem brennur á fólki,“ segir í tilkynningu. Þá á það jafnt við um núverandi málaflokka, loftslagsmálin, hvort hún sakni allra Covid-tengdu verkefnanna…Lesa meira