{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Daginn fyrir gamlársdag skrifuðu Félag grunnskólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga undir nýjan kjarasamning. Samningurinn var undirritaður með rafrænum hætti hjá embætti ríkissáttasemjara. Gildistími er frá 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. „Þetta er í fyrsta sinn sem Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrita nýjan kjarasamning áður en gildandi samningur rennur út. Nýr kjarasamningur fer nú í kynningu meðal félagsmanna Félags grunnskólakennara og hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir þann 14. janúar 2022,“ segir í tilkynningu frá SÍS.",
"innerBlocks": []
}
Grunnskólakennarar semja við sveitarfélögin - Skessuhorn