Hendry Engelbrecht var stigahæstur í liði ÍA í gær með 18 stig. Hér í leik gegn Hrunamönnum á dögunum. Ljósm. vaks

Skagamenn fengu skell gegn Hattarmönnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "ÍA og Höttur mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fyrir leik var lið ÍA á botninum með tvö stig en Höttur í þriðja sætinu með 20 stig og í mikilli baráttu við Hauka og Álftanes um sæti í efstu deild. Það sást fljótt í leiknum hvort liðið var í efri hlutanum því eftir rúmlega fimm mínútna leik var staðan orðin 5:20 gestunum í vil og staðan eftir fyrsta leikhluta 16:31. Skagamenn reyndu hvað þeir gátu til að halda í við gestina, náðu að minnka muninn í tíu stig en síðan gáfu gestirnir í og fóru með meira en þrjátíu stiga forskot inn í hálfleikinn, staðan 30:64.\r\n\r\nSkagamenn, sem voru án síns besta leikmanns, Cristopher Clover, áttu litla möguleika á að snúa leiknum sér í vil og Hattarmenn héldu áfram að auka muninn í þriðja leikhluta. Þegar honum lauk var staðan orðin 49:85 fyrir gestina og aðeins spurning hve sigurinn yrði stór. Í fjórða og síðasta leikhlutanum skoruðu Skagamenn sín fyrstu stig eftir rúman fimm mínútna leik og ljóst að eins og vitað var fyrir leikinn að þeir myndu eiga við ramman reip að draga. Þeir héldu þó áfram að berjast fyrir sínu en lokatölur leiksins, 60:102.\r\n\r\nLjósu punktar leiksins í gær voru þeir að margir ungir leikmenn fengu að spreyta sig í meira mæli en oft áður og má þar nefna leikmenn eins og Aron Elvar Dagsson, Daða Má Alfreðsson, og Júlíus Duranona.\r\n\r\nStigahæstir í liði ÍA voru þeir Hendry Engelbrecht með 18 stig, Aron Elvar með 12 stig og Þórður Freyr Jónsson með 10 stig. Hjá Hetti var Arturo Rodriguez með 22 stig, David Ramos með 21 stig og Timothy Guers með 13 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skagamanna í deildinni er gegn liði Hamars föstudaginn 14. janúar í Hveragerði og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn fengu skell gegn Hattarmönnum - Skessuhorn