Fréttir

true

Smit kom upp í Brákarhlíð

Covid smit hefur komið upp hjá starfsmanni Brákarhlíðar í Borgarnesi. Framkvæmd voru hraðpróf hjá heimilisfólki og starfsfólki og hefur eitt smit til viðbótar verið staðfest með PCR prófi. Um er að ræða einkennalausan einstakling á heimilinu Tjörn og hefur það heimili því verið sett í einangrun. Í frétt á vef Brákarhlíðar segir að reynt sé…Lesa meira

true

Nýr rekstraraðili N1 í Ólafsvík

Í byrjun árs tók Einar R Ísfjörð við sem rekstrarstjóri hjá N1 í Ólafsvík. Einar sagði í stuttu spjalli við fréttaritara Skessuhorns að hann hafi verið rekstrarstjóri hjá N1 í Staðarskála í Hrútafirði undanfarin sjö ár og þar áður starfað í Keflavík. „Mér var boðið þessi staða og þáði hana,“ sagði Einar. „Ég mun sjá…Lesa meira

true

Mögulegt að uppfylltum skilyrðum að skipta búsetu barns

Breytingar á barnalögum um skipta búsetu barns, sem tóku gildi í ársbyrjun, gera ráð fyrir að foreldrar geti samið um skipta búsetu barns við tilteknar aðstæður. Forsendur þess að semja um skipta búsetu barns eru þær að foreldrar geti komið sér saman um atriði er snúa að umönnun og uppeldi barnsins. Hægt verður að gera…Lesa meira

true

Hvalaskoðunin komin af stað aftur

Hvalaskoðunarbáturinn Íris hjá Láki Tours í Grundarfirði hefur verið að sigla með ferðamenn undanfarna daga í von um að sjá þessi stóru spendýr spóka sig um í íslenskri lögsögu. Hvalaskoðunarferðirnar hófust aftur 20. desember síðastliðinn og hafa verið farnar nokkrar ferðir yfir hátíðarnar og svo núna í byrjun janúar. Samkvæmt heimasíðu Láki Tours hefur verið…Lesa meira

true

Kristín kjörin Íþróttamaður Akraness

Kraftlyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness árið 2021 en úrslitin voru kunngjörð á Garðavöllum á Akranesi. Í öðru sæti í kjörinu var sundmaðurinn Enrique Snær Llorens Sigurðsson og badmintonkonan Drífa Harðardóttir í þriðja sæti. Þetta er í annað sinn sem Kristín hlýtur þennan titil en hún var einnig kjörin í fyrra.  Lesa meira

true

Rauk úr bíl

Slökkvilið Borgarbyggðar fór nú síðdegis í lítið útkall. Reyk lagði frá mannlausum jeppling sem lagt var framan við Borgarbraut 61 í Borgarnesi. Eldur var ekki laus í bílnum en einhvers konar samleiðsla hafði orðið. Slökkvilið aftengdi rafgeymi og beitti hitamyndavél til að útiloka að glæður leyndust í bílnum.Lesa meira

true

Randi tekur við Reiðmanninum hjá LbhÍ

Randi Holaker hefur tekið við sem verkefnastjóri í Reiðmanninum hjá Endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. „Randi er fædd og uppalin rétt fyrir utan Osló í Noregi. Hún er menntuð hjúkrunarfræðingur, með grunnmenntun í kennslufræði, sem og tamningarmaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Randi er gæðingadómari, hefur lokið fyrri hluta íþróttadómaranáms, er knapamerkjadómari og með…Lesa meira

true

Jólatré sótt á Akranesi í byrjun næstu viku

Akraneskaupstaður býður upp á hirðingu jólatrjá mánudaginn 10. janúar og þriðjudaginn 11. janúar næstkomandi en frá þessu segir á vef bæjarins. Það eina sem íbúar þurfa að gera er einfaldlega að setja jólatrén út við götu. Bent er á að einungis jólatré verða tekin, ekki annað sorp. Þá hvetur Akraneskaupstaður bæjarbúa til að ganga vel…Lesa meira

true

Nýr verðlaunagripur í kjöri Íþróttamanns Akraness

Íþróttamaður Akraness, sem verður krýndur í kvöld á Garðavöllum á Akranesi, fær í fangið nýjan bikar þegar hann tekur við verðlaununum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íþróttabandalagi Akraness sem birt var á vefsíðu bandalagsins í gær. Frá árinu 1977 hefur kjör Íþróttamanns Akraness verið árviss viðburður og var núverandi bikar, Friðþjófsbikarinn, fyrst afhentur árið…Lesa meira

true

Veruleg fjölgun smitaðra milli daga

Smituðum af Covid-19 á Vesturlandi fjölgaði um 31 milli daga, eru nú 210. Auk þess eru 227 í sóttkví í landshlutanum. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi. Aukningin er öll á Akranesi og á svæði heilsugæslustöðvar HVE í Borgarnesi. Nú eru 76 í einangrun á Akranesi og 139 í sóttkví; í Borgarnesi…Lesa meira