Fréttir

true

Leikskólastarf í 45 ár í Grundarfirði

Síðastliðinn þriðjudag voru 45 ár frá því að leikskólastarf hófst í Grundarfirði en það var 4. janúar árið 1977 sem opnaður var leikskóli í húsi grunnskólans. 15. nóvember sama ár varð Leikskólinn Sólvellir svo til, þegar starfsemin flutti úr grunnskólanum í eigið húsnæði að Sólvöllum 1, þar sem hann er enn í dag. Frá þessum…Lesa meira

true

Um fimm prósent þjóðarinnar í sóttkví eða einangrun

Í gær voru 1.378 greindir á landinu með kórónuveiruna. Af þeim voru rúmlega 300 smit greind á landamærunum sem er nýtt met. Yfir sautján þúsund manns eru nú í sóttkví eða einangrun eða nærri fimm prósent þjóðarinnar. Um tíu prósent þjóðarinnar hefur nú greinst með veiruna. Fréttavefur Ríkisútvarpsins hefur það eftir fulltrúa Almannavarna að flest…Lesa meira

true

Tíu prósenta aukning löndunar í Snæfellsbæ

Afli báta frá Snæfellsbæ var mjög góður árið 2021, eða samtals 35.539 tonn, en árið 2020 var landaður afli 32.304 tonn. Þetta er því 10% aukning milli ára. Allar þessar tölur miðast við óslægðan afla. Hafnir Snæfellsbæjar eru þrjár og var landað 1.647 tonnum á Arnarstapa árið 2021 á móti 1.784 tonnum árið 2020. Í…Lesa meira

true

Há sjávarstaða í höfnum

Á flóði í morgun höfðu menn gert ráð fyrir að gefið gæti yfir í höfnum í kjölfar lægðarinnar sem kom upp að landinu. Bátar voru því vel bundnir og sumsstaðar höfðu þeir verið teknir upp. Í höfninni á Arnarstapa voru þannig engir bátar, en þar gekk sjór upp á bryggjuna og færði til karasamstæðu. Í…Lesa meira

true

Akurey kom inn til löndunar í Grundarfirði

Nú í morgun kom Akurey AK inn til löndunar í Grundarfirði. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd var mjög stórstreymt þegar skipið lagðist að bryggju og talsverður vindur. Því pusaði vel yfir flutningabílana sem biðu á hafnarkantinum eftir að taka við aflanum úr skipinu og flytja til vinnslu. Aflinn var um 140 tonn, einkum…Lesa meira

true

Engin óveðursútköll í gærkvöldi og nótt

Ekkert tjón eða útkall af völdum hvassviðris er skráð í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi í gærkvöldi og nótt. Miðað við veðurspá slapp landshlutinn því betur en búist hafði verið við vegna djúprar lægðar sem teygði anga sína inn á landið. Samkvæmt sjálfvirkum vindhraðamælum varð mest rok á veginum við Hafnarfjall, en þar sló vindur upp…Lesa meira

true

Líkar mjög vel hjá FC Kaupmannahöfn

Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er þegar byrjaður að láta að sér kveða hjá FC Kaupmannahöfn í danska boltanum. Hann hefur nú leikið átta leiki með aðalliði félagsins, þann fyrsta gegn Vejle í dönsku Superligunni í 3:0 sigri nú í lok október. Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið í leiknum…Lesa meira

true

Samtakamáttur og þrautseigja íbúa og starfsmanna efldist í Covid

Nýliðið ár hefur verið áskorun fyrir alla, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða sveitarfélög. Skessuhorn leitaði til bæjar- og sveitarstjóra sjö stærstu sveitarfélaganna á Vesturlandi og spurði þá út í hvað stæði helst upp úr frá árinu 2021, hver væru stærstu verkefni og áskoranir sveitarfélaganna og hvernig árið 2022 legðist í þá. Viðmælendum…Lesa meira

true

Viðvaranir vegna veðurs orðnar appelsínugular

Veðurstofa Íslands hefur fært viðvaranir vegna lægðarinnar í kvöld og nótt úr gulum í appelsínugular fyrir allt vestanvert landið, frá Barðaströnd og suður um að suðvesturlandi meðtöldu. Gilda þær frá því í kvöld og til fyrramáls. Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll. Þessu fylgir að ekkert ferðaveður verður um vestanvert landið, t.d. á…Lesa meira

true

Kristín Þórhallsdóttir er Vestlendingur ársins 2021

Þegar kom að árlegu kjöri Vestlendings ársins að þessu sinni varð fljótlega ljóst hvert stefndi. Þrátt fyrir að tugir einstaklinga hafi verið tilnefndir var eitt nafn sem oftar var nefnt en önnur, en það var nafn Kristínar Þórhallsdóttur dýralæknis og kraftlyftingakonu í Borgarfirði. Auk þess að standa fyrir heimili og praktísera sem dýralæknir í fullu…Lesa meira