Kristín Þórhallsdóttir Vestlendingur ársins 2021 með blóm og áritaðan kristalsvasa frá Skessuhorni. Ljósm. mm.

Kristín Þórhallsdóttir er Vestlendingur ársins 2021

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þegar kom að árlegu kjöri Vestlendings ársins að þessu sinni varð fljótlega ljóst hvert stefndi. Þrátt fyrir að tugir einstaklinga hafi verið tilnefndir var eitt nafn sem oftar var nefnt en önnur, en það var nafn Kristínar Þórhallsdóttur dýralæknis og kraftlyftingakonu í Borgarfirði. Auk þess að standa fyrir heimili og praktísera sem dýralæknir í fullu starfi náði hún feiknargóðum árangri á íþróttasviðinu á liðnu ári, setti Evrópumet og er nú önnur á heimslistanum.\r\n\r\nUndanfarinn tæpan aldarfjórðung hefur Skessuhorn auglýst eftir tilnefningum um Vestlending ársins; fólkið sem landshlutann byggir og skarað hefur fram úr á einhvern hátt á árinu. Að þessu sinni bárust tilnefningar um óvenju marga einstaklinga eða hópa, en alls var á fimmta tug einstaklinga nefndir og nokkrir þeirra hlutu mörg atkvæði. Þeir sem urðu í tíu efstu sætunum eru í stafrófsröð:\r\n
\r\n \t
Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, Kvíaholti, fyrir jákvætt viðhorf og baráttuanda.
\r\n \t
Birgir Tryggvason í Ólafsvík, fyrir björgunarstarf á árinu.
\r\n \t
Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir í Borgarnesi, stofnandi Hinsegin Vesturlands.
\r\n \t
Hannes Sigurbjörn Jónsson á Akranesi, fyrir að opna umræðuna um skaðsemi eineltis.
\r\n \t
Heimilisfólk dvalarheimila á Vesturlandi.
\r\n \t
Jón Axel Jónsson, fyrir óeigingjarnt starf í eftirleitum.
\r\n \t
Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingakona Laugalandi í Borgarfirði.
\r\n \t
Sigríður Ævarsdóttir og Benedikt Líndal á Gufuá fyrir áhugaverðar leiðir til að nálgast náttúruna og landið af virðingu.
\r\n \t
Thelma Harðardóttir, Skarðshömrum í Norðurárdal, fyrir baráttu sína fyrir náttúruvernd.
\r\n \t
Tinna Ósk Grímarsdóttir og Axel Gíslason eigendur Dótarí á Akranesi.
\r\n
\r\nÍ Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við Vestlending ársins 2021. ",
"innerBlocks": []

Kristín Þórhallsdóttir er Vestlendingur ársins 2021 - Skessuhorn