Fréttir

true

Allt á fullu í snjómokstri

Það var nóg að gera hjá starfsmönnum Þróttar ehf vélaleigu þegar blaðamaður Skessuhorns átti leið hjá á Vesturgötu á Akranesi seinni partinn í gær. Þróttur ehf sér um snjómokstur í bænum og fengu starfsmenn fyrirtækisins leyfi í gær til að koma með vörubíl og moka burt snjó af svæðinu. Hluta af götunni er þá lokaður…Lesa meira

true

Lærdómsríkt, krefjandi og skemmtilegt

Sigurbjörg Ottesen, oddviti Eyja- og Miklaholtshrepps segir það einna helst standa upp úr á liðnu ári að hafa verið kosin í sveitarstjórn í sveitarstjórnarkosningunum síðastliðið vor. Á fyrsta fundi sveitarstjórnar var hún svo kjörin oddviti hreppsins. „Á sama tíma og þetta nýja starf hefur verið afar lærdómsríkt og krefjandi, þá hefur þetta einnig verið skemmtilegt…Lesa meira

true

Þrettándabrennur verða víða á Vesturlandi

Á Íslandi eru jólin formlega kvödd á þrettánda degi jóla, 6. janúar. Á mörgum stöðum er hefð fyrir þrettándabrennum og hafa nú nokkrar verið auglýstar í landshlutanum næsta föstudag. Þrettándabrennur verða a.m.k. á Akranesi, í Borgarnesi, Stykkishólmi og Grundarfirði. Björgunarfélag Akraness sér um brennu og flugeldasýningu við þyrlupallinn á Jaðarsbökkum en dagskrá hefst kl. 17.…Lesa meira

true

Kraftur í atvinnulífinu og framkvæmdagleði

Stefán Broddi Guðjónsson tók við sem sveitarstjóri Borgarbyggðar síðastliðið sumar og segir hann það vera eitt af því sem bar hæst árið 2022 hjá sér persónulega. „Það hefur verið mjög ánægjulegt en heilmikil áskorun og dálítið púsluspil fyrir fjölskylduna sem er þó bara skemmtilegt,“ segir Stefán Broddi. Hvað sveitarfélagið varðar var mikill kraftur í atvinnulífi…Lesa meira

true

Vesturland fær 267 tonn

Vesturland fær 267 tonn í byggðakvóta Á fiskveiðiárinu 2022-2023 er almennum byggðakvóta úthlutað til 51 byggðarlags í 29 sveitarfélögum á landinu. Heildarúthlutun eykst um 262 tonn milli ára og verða því breytingar á magni úthlutaðra þorskígildistonna til einstakra byggðarlaga. Byggðarlög með færri en 400 íbúa fá 3.271 þorskígildistonnum úthlutað en byggðarlög með fleiri en 400…Lesa meira

true

Fjölmargir smáskjálftar mælast innan Ljósufjallasvæðisins

Á síðu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands er sagt frá því að nýtt ár hafi byrjað með áframhaldi á skjálftavirkni austan Hítardals á Mýrum. Sem fyrr er ekki um öfluga hrinu að ræða, en nokkrir skjálftar á stærðarbilinu 1-2 hafa mælst frá áramótum. „Virknin er mest á milli tveggja stöðuvatna, Grjótárvatns og Háleiksvatns, skammt frá gígum…Lesa meira

true

Uppbygging og framkvæmdir enn áberandi

Linda Björk Pálsdóttir, sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, segir árið 2022 vera sögulegt fyrir Hvalfjarðarsveit þar sem íbúar hafa aldrei verið fleiri en í desember síðastliðnum voru þeir 754. Á liðnu ári hélt uppbygging og framkvæmdir í sveitarfélaginu áfram af fullum krafti, nýbyggingar risu í Krosslandi, víðsvegar í dreifbýlinu og í Melahverfi ásamt gerð útivistarsvæðis í hverfinu sem…Lesa meira

true

Góður dagur hjá Eymari og félögum á Ebba – MYNDBAND

Seint í gærkvöldi var seinni löndun dagsins úr Ebba AK sem rær frá Akranesi. Um miðjan daginn lönduðu Eymar Einarsson og félagar hans Marinó Freyr Jóhannesson og Guðmundur Sigurbjörnsson tíu tonnum á fiskmarkaðinum á Akranesi en þeir urðu að halda út aftur til að ljúka við að draga netin. Síðari skammturinn var upp undir sama…Lesa meira

true

Steinunn Árnadóttir er Vestlendingur ársins 2022

Undir lok nýliðins árs óskaði Skessuhorn eftir því að íbúar í landshlutanum sendu inn tilnefningar um hver ætti að hljóta sæmdarheitið Vestlendingur ársins 2022. Hver væri sá íbúi í landshlutanum sem hefði á einhvern hátt skarað fram úr á árinu. Þetta er í 25. skipti sem Skessuhorn gengst fyrir þessari útnefningu og á þessum aldarfjórðungi…Lesa meira

true

Ellefu nemendur útskrifuðust frá MB á haustönn

Fyrir jól útskrifuðust ellefu nemendur með stúdentspróf frá Menntaskóla Borgarfjarðar en það er mesti fjöldi sem útskrifast hefur frá skólanum á haustönn frá upphafi. Þeir nemendur sem höfðu tök á mættu og tóku við skírteinum sínum 22. desember síðastliðinn en hefð er fyrir því að útskriftarnemendur haustannar mæti til formlegrar brautskráningar að vori. Bragi Þór…Lesa meira