Grunnskólinn og fjær eru núverandi íþróttamannvirki í Borgarnesi. Ljósm. mm.

Kraftur í atvinnulífinu og framkvæmdagleði

Stefán Broddi Guðjónsson tók við sem sveitarstjóri Borgarbyggðar síðastliðið sumar og segir hann það vera eitt af því sem bar hæst árið 2022 hjá sér persónulega. „Það hefur verið mjög ánægjulegt en heilmikil áskorun og dálítið púsluspil fyrir fjölskylduna sem er þó bara skemmtilegt,“ segir Stefán Broddi. Hvað sveitarfélagið varðar var mikill kraftur í atvinnulífi í Borgarbyggð á árinu 2022, atvinnuástand gott og framkvæmdagleði hjá íbúum og fyrirtækjum. „Ferðaþjónustan tók við sér af krafti eftir að landið opnaðist. Íbúum í Borgarbyggð fjölgaði jafnt og þétt allt árið og fór fjöldinn í fyrsta skipti yfir 4.000. Það er umpólun í gangi á Íslandi og víðar í heiminum sem þýðir að þau lífsgæði verða sífellt eftirsóttari að búa í dreifbýli eða smábæjum skammt frá höfuðborginni. Ég held reyndar að Vesturland allt geti notið góðs af þessari þróun,“ segir Stefán Broddi en hjá Borgarbyggð hefur verið lögð áhersla á að skapa framboð á nýjum lóðum og þróun innviða. Þannig geti sveitarfélagið tekið á móti nýjum íbúum og fyrirtækjum, og lagt grunn að góðri þjónustu á komandi árum.

Kraftur í atvinnulífinu og framkvæmdagleði - Skessuhorn