Fréttir

true

Sjúktspjall heldur áfram

Forsætisráðuneytið og Stígamót hafa gert samstarfssamning um framhald verkefnisins Sjúktspjall og mun þar forsætisráðuneytið veita tólf milljónum króna til verkefnisins. Um er að ræða nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða við ráðgjafa Stígamóta um áhyggjur af samböndum sínum, samskiptum eða ofbeldi. Spjallið er fyrir ungmenni yngri en 20 ára og er opið þrjú kvöld…Lesa meira

true

Ferjan Röst gæti komið í stað Baldurs

Vegagerðin skoðar það núna að kaupa norsku ferjuna Röst, til siglinga á Breiðafirði í stað ferjunnar Baldurs. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir í skriflegu svari við fyrirspurnum Skessuhorns að sérfræðingur á vegum Vegagerðarinnar sé þessa stundina úti í Noregi að skoða skipið. Um sé að ræða faglega skoðun auk þess sem leggja þurfi mat…Lesa meira

true

Halldóra hættir á bókasafninu

Á fundi Menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar 19. desember síðastliðinn kom fram að Halldóra Jónsdóttir bæjarbókavörður á Bókasafni Akraness hafi látið af störfum að eigin ósk vegna aldurs nú um áramótin. Menningar- og safnanefnd færði Halldóru kærar þakkir fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til menningar- og safnamála á Akranesi. Nefndin óskaði henni jafnframt velfarnaðar…Lesa meira

true

Fólk hugi að eignum sínum eftir frosthörkurnar

Það er skammt stórra högga á milli í veðráttunni. Eftir hlýjasta nóvembermánuð á landsvísu frá upphafi mælinga reyndist desember vera sá kaldasti frá upphafi mælinga á suðvesturhorni landsins. Fara þarf aftur til ársins 1916 til að sjá lægri hitatölur í Reykjavík. Um vestanvert landið fór frostið jafnvel niður í 25 gráður í uppsveitum. Þegar frostakaflinn…Lesa meira

true

Telja ON fara of lágt með vatnsstöðu Skorradalsvatns

Veiðifélag Skorradalsvatns lýsir þungum áhyggjum af því að nú drenar Orka náttúrunnar stöðugt úr vatninu til að fóðra Andakílsárvirkjun. Yfirborð þess er nú komið vel undir náttúrulega lægstu stöðu og neðar en ON hefur áður lofað landeigendum að ekki muni verða látið gerast. Að sögn Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum hefur ísinn á vatninu þykknað með…Lesa meira

true

Tíu í kjöri til íþróttamanneskju Borgarfjarðar

Þrettán voru tilnefndir hjá Ungmennasambandi Borgarfjarðar til Íþróttamanneskju ársins 2022. Kosningin fór fram milli jóla og nýárs en úrslit verða tilkynnt á þrettándanum, 6. janúar klukkan 17 í Hjálmakletti. Eftirfarandi tíu einstaklingar eru í kjöri: Alexandrea Rán Guðnýjardóttir, kraftlyftingar. Bjarki Pétursson, golf. Bjarni Guðmann Jónsson, körfuknattleikur. Brynjar Snær Pálsson, knattspyrna. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, frjálsar íþróttir.…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Hlynur Bæringsson

Launin voru eitt skópar og 20 þúsund krónur fyrir áramót Körfuboltaleikmaðurinn Hlynur Bæringsson er fæddur í Stykkishólmi. Hann bjó í Grundarfirði til þrettán ára aldurs en flutti þaðan til Borgarness þar sem hann bjó í sex ár. Leið hans lá svo aftur til Stykkishólms næstu átta árin eftir það þar sem ferill hans í körfuboltanum…Lesa meira

true

Krónan safnaði og gaf

Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort fyrir jólin. Gjafakortin voru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls söfnuðust…Lesa meira

true

Nýjar reglur um íþrótta- og tómstundastyrk

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 14. desember 2022 breytingu á reglum um íþrótta- og tómstundastyrki sem tóku gildi 1. janúar 2023. Styrkurinn verður áfram kr. 70.000 á ári en jafnframt geta börn og unglingar á tekjulágum heimilum fengið kr. 30.000 á ári til viðbótar við tómstundastyrk.Styrkurinn sem miðast við almanaksárið er fyrir börn og…Lesa meira

true

Snæfellsbær með nýjan samning við Frystiklefann

Fram kemur á FB síðu Snæfellsbæjar að eitt af síðustu verkum ársins 2022 hafi verið að undirrita nýjan menningarsamning við Frystiklefann í Rifi. Samningurinn, sem gildir í tvö ár, felur í sér verkefni með leikskólum, eldri borgurum og einstaklingum með skerta starfsgetu, ásamt því að sjá eldri borgurum og unglingum í 8.-10. bekk fyrir ársmiðum…Lesa meira