Fréttir

true

Krapi og hálka á vegum

Krapi, snóþekja og hálka er nú víða á vegum á Vesturlandi og ástæða til að hvetja ökumenn til að fara með gát. Nokkur smáóhöpp hafa í dag orðið í umferðinni samkvæmt upplýsingum Skessuhorns og nú er vegurinn norðan við Akrafjall lokaður vegna óhapps við Kjalardal kl. 14:30. Engar frekari upplýsingar liggja fyrir um það óhapp,…Lesa meira

true

Fyrsti Vestlendingur ársins kom í heiminn á nýársdag

Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er drengur sem kom í heiminn á fæðingadeild HVE á Akranesi klukkan 13:32 í gær, nýársdag. Drengurinn vó 3.810 grömm og er 52 sentímetrar að lengd. Foreldrar hans eru þau Sólveig Ólafsdóttir frá Reykjavík og Darri Atlason frá Ólafsvík en þau eru búin að búa í Borgarnesi síðastliðin fimm ár.…Lesa meira

true

Fréttablaðinu ekki lengur frídreift í hús

Torg útgáfufélag hefur hætt að dreifa Fréttablaðinu frítt í hús á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri. Það mun þó áfram verða prentað og gert aðgengilegt á fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, Árborgarsvæðinu, Akranesi, Borgarnesi og Akureyri. Þá verður það sömuleiðis gert aðgengilegt á rafrænu formi eins og verið hefur. Útgefendur segjast í tilkynningu ekki telja að…Lesa meira

true

Magnea áfram hjá ÍA

Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari kvennaliðs ÍA í knattspyrnu verður áfram þjálfari liðsins. Þetta kom fram á fundi með henni og leikmönnum liðsins í morgun en í byrjun desember hafði Magnea tilkynnt leikmönnum sínum að hún yrði ekki við stjórnvölinn á næsta tímabili. Magnea segir í stuttu spjalli við Skessuhorn að hún væri hætt við að hætta.…Lesa meira

true

Ísland í áttunda sæti yfir langlífi

Ný rannsókn á vegum NiceRx, amerískrar heilbrigðisvísindastofnunar, leiðir í ljós að Ísland situr nú í áttunda sæti á lista þjóða yfir langlífi. Meðallífslengd á Íslandi í dag er tæplega 84 ár. Meðalaldur kvenna er um 86 ár og meðalaldur karla 82 ár. Hong Kong situr í efsta sæti listans með meðalaldurinn rúm 85 ár, annað…Lesa meira

true

Ný rödd Toyota

Ólafur Darri Ólafsson hefur tekið við af Agli Ólafssyni sem rödd Toyota. Athygli vakti auglýsing Toyota á gamlárskvöld þar sem þeir félagar birtust saman á skjánum. Ekkert var sagt alla þá stund á meðan auglýsingin varði, en skilaboðin voru skýr þar sem Egill afhendir Ólafi Darra hljóðnemann. Egill hefur verið rödd Toyota í 30 ár…Lesa meira

true

Biskup hyggst hætta árið 2024

Séra Agnes M Sigurðardóttir biskup Íslands tilkynnti það í nýársprédikun sinni í Dómkirkjunni að hún muni láta af embætti eftir 18 mánuði en á næsta ári verður hún 70 ára. Morgunblaðið greindi frá. Agnes mun ljúka vísitasíu sinni um landið í Bolungarvík á sjómannadaginn á næsta ári, en þar var hún sóknarprestur um árabil en…Lesa meira

true

Veðurfræðin getur verið flókin

Umræða hefur frá því að morgni nýársdags skapast um þá staðreynd að lægð sem ganga átti inn á suðvestanvert landið á gamlársdag reyndist hafa farið sunnar en veðurfræðingar spáðu. Því varð ekki slæmt veður í landshlutanum á gamlársdag, raunar frekar stillt vetrarveður, en þó lítilsháttar él með köflum. Gul og appelsínugul viðvörun reyndist því með…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta er ekki í erfðaefni okkar Íslendinga

Í aðsendri grein sem Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustannar ritar nú við áramót bendir hún á að uppgangur ferðaþjónustunnar er undirrót hagvaxtar síðasta áratugar og hefur bætt lífskjör á Íslandi svo um munaði. „Til að tryggja að svo verði áfram þarf hún og mikilvægi hennar einfaldlega meira pláss í hugum og í vitund Íslendinga,“ segir…Lesa meira

true

Fjórtán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi í dag 14 Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Í þeim hópi eru m.a. tveir Borgnesingar, þau Anna Sigríður Þorvaldsdóttir tónskáld og Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarsérfræðingur. Þessi hlutu viðurkenningu: Anna Hjaltested Pétursdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar, riddarakross fyrir framlag til mannúðar- og samfélagsmála. Anna Sigríður Þorvaldsdóttir tónskáld, riddarakross…Lesa meira