
Að venju var hlaðinn heljarstór bálköstur á Breiðinni milli Ólafsvíkur og Rifs á gamlársdag. Verkið var undir styrkri stjórn brennustjórans til margra áratuga; Hjálmars Kristjánssonar. Ágætis veður var á meðan á brennunni stóð. Fjölmenni mætti og naut skemmtunar og flugeldasýningu björgunarsveitarinnar Lífsbjargar sem var hin glæsilegasta.Lesa meira








