Áramótin og dýrin

Nú eru áramótin framundan og áframhaldandi veisluhöld hjá okkur mannfólkinu. Margir fagna áramótunum með skoteldum, með tilheyrandi hvellum og blossum. Fæstum dýrum er hinsvegar vel við slík læti og geta bæði hljóðin, höggbylgjan og blossinn valdið sumum þeirra ofsahræðslu sem getur leitt til slysa á þeim sjálfum og öðrum. Í gær mátti hefja sölu á flugeldum og er því viðbúið að hvellir og sprengingar fari að heyrast.