Met slegið í flugeldasölu hjá Björgunarsveitunum Brák og Heiðari

Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi selur flugelda ásamt Björgunarsveitnni Heiðari í nýjum húsakinnum Brákar að Fitjum 2 við hringtorgið í Borgarnesi. Ásgeir Sæmundsson, meðlimur Brákar segir fyrsta dag sölunnar þetta árið hafa slegið sölumet hjá sveitunum tveimur. ,,Sala gærdagsins var á pari við sama dag undanfarin ár, 29. desember. Fyrsti dagurinn, 28. desember, hefur hins vegar aldrei verið eins söluhár og núna. Í dag er svo búið að vera vitlaust að gera og stóru terturnar eru búnar hjá okkur en það eru fleiri á leiðinni til okkar, þannig að salan er búin að vera að ganga rosalega vel,“ segir Ásgeir.

Met slegið í flugeldasölu hjá Björgunarsveitunum Brák og Heiðari - Skessuhorn