Pétur, Kristín, Freyr og Jóhann stóðu vaktina í gær. Ljósm. mm.

Flugeldasalan fór vel af stað

Það var bjart yfir sölufólki björgunarsveitanna Heiðars og Brákar sem hafa komið sér fyrir í nýja björgunarsveitarhúsinu við Fitja 2 í Borgarnesi. Blaðamaður leit við hjá þeim í gær og sögðu þau flugeldasöluna hafa farið betur af stað en búist hafði verið við. Stærsti söludagurinn er í dag, en einnig verður opið framan af degi á morgun, gamlársdag. Miðað við veðurspá fyrir fyrri part morguns er e.t.v. ástæða til að hvetja fólk til að gera flugelda innkaupin í dag.  

Flugeldasalan fór vel af stað - Skessuhorn