
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF.
Ferðaþjónusta er ekki í erfðaefni okkar Íslendinga
Í aðsendri grein sem Bjarnheiður Hallsdóttir formaður Samtaka ferðaþjónustannar ritar nú við áramót bendir hún á að uppgangur ferðaþjónustunnar er undirrót hagvaxtar síðasta áratugar og hefur bætt lífskjör á Íslandi svo um munaði. „Til að tryggja að svo verði áfram þarf hún og mikilvægi hennar einfaldlega meira pláss í hugum og í vitund Íslendinga,“ segir hún.