
Eymar með einn rígvænan. Ljósm. mm
Góður dagur hjá Eymari og félögum á Ebba – MYNDBAND
Seint í gærkvöldi var seinni löndun dagsins úr Ebba AK sem rær frá Akranesi. Um miðjan daginn lönduðu Eymar Einarsson og félagar hans Marinó Freyr Jóhannesson og Guðmundur Sigurbjörnsson tíu tonnum á fiskmarkaðinum á Akranesi en þeir urðu að halda út aftur til að ljúka við að draga netin. Síðari skammturinn var upp undir sama magn. Það sem vakti athygli er að þessi tæplega tuttugu tonn voru nær eingöngu stútungsþorskur, vel haldinn og fallegur fiskur, sem flokkast í dýrasta verðflokk, þ.e. átta kíló plús. Sjálfur er Eymar kominn á áttræðisaldur og viðurkenndi fúslega að hann væri orðinn lúinn eftir langan dag og mikil átök. Netin lögðu þeir um fimm sjómílur vestur af Akranesi.