Fréttir

true

Nýr kaldur pottur tekinn í notkun á Jaðarsbökkum – Myndband

Seinni partinn í gær var vígsla á nýjum köldum potti í Jaðarsbakkalaug á Akranesi. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri og Hrönn Ríkharðsdóttir formaður ÍA ávörpuðu viðstadda og síðan klipptu þau á borðann ásamt þeim Líf Lárusdóttur, Jónínu Margréti Sigmundsdóttur og Ragnari Baldvini Sæmundssyni úr bæjarstjórn Akraneskaupstaðar. Nýi potturinn kemur í staðinn fyrir fiskikar sem hefur verið…Lesa meira

true

Jólamarkaður Lions stóð fyrir sínu

Í gær, miðvikudaginn 7. desember, var mikið um að vera í Grundarfirði. Verslanir voru opnar fram á kvöld og margt fólk sem rölti á milli búða í blíðviðrinu. Hinn árlegi jólamarkaður Lions var einnig nýopnaður en þar var hægt að fá ýmislegt nytsamlegt og girnilegt til jólanna.  Lesa meira

true

Á þriðja hundrað mættu á jólatónleika í Dalabúð

Fjölskyldan á Skerðingsstöðum í Hvammssveit hélt jólatónleika í Dalabúð síðastliðið laugardagskvöld ásamt góðum vinum, mæðgunum Unni Sigurðardóttur og Ólöfu Bogadóttur frá Stóra-Kálfalæk á Mýrum, bræðrunum Steinþóri Loga og Kristjáni Inga Arnarssonum frá Stórholti í Saurbæ og Ingvari Kristjáni og Guðmundi Sveini Bæringssonum, frá Þorbergsstöðum í Laxárdal. „Þetta er í raun gamall draumur sem varð loks…Lesa meira

true

Umferðarmet á Hringvegi í nóvember

Umferðin á Hringvegi (1) í nóvember í ár er ríflega 11% meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að líklegt þyki að einkar gott veðurfar í nóvember þetta árið hafi leitt til aukinnar umferðar. Umferð hefur aukist á öllum vikudögum miðað við nóvember í fyrra.…Lesa meira

true

Lemon míní opnar á þremur Olís þjónustustöðvum

Það hefur fjölgað hratt í hópi þeirra þjónustustöðva Olís sem bjóða upp á Lemon sem hluta af sínu vöruvali en Lemon rekur nú þegar hefðbundna staði í Norðlingaholti og í Gullinbrú í Reykjavík. Á undanförnum vikum hafa þjónustustöðvar Olís í Borgarnesi, á Akranesi og nú síðast á Selfossi bæst í hópinn. Þar er boðið upp…Lesa meira

true

Fjórar sorptunnur verða við hvert heimili á Akranesi

Samkvæmt þeim lögum sem taka gildi um áramót er varða flokkun sorps við heimili á Íslandi þarf að flokka sorp í fjóra flokka og skulu ílát vera fyrir hvern flokk við hvert heimili. Bæjarstjórn Akraness hefur sent frá sér tilkynningu um ákvörðun sína í þeim efnum. Þar segir að það fyrirkomulag sem hafi fengið mestan…Lesa meira

true

Hittast einu sinni í viku til að hafa gaman

Pílurnar eru hópur kvenna í Snæfellsbæ sem hittast að jafnaði einu sinni í viku í íþróttahúsinu og gera eitthvað skemmtilegt saman. Þetta hófst allt saman fyrir ári síðan. Blaðamaður Skessuhorns heyrði í Regínu Ösp Ásgeirsdóttur, sem er gjaldkeri Pílanna, og fékk að heyra um þennan forvitnilega félagsskap. Regína Ösp segir að þær hittist alltaf á…Lesa meira

true

Íbúum hefur fjölgað á árinu – Skagamenn að detta í átta þúsund

Íbúar á Vesturlandi voru 17.497 þann 1. desember síðastliðinn, en það er sú dagsetning sem oft er miðað við í hagtölum. Fjölgun á árinu jafngildir 0,6% í landshlutanum. Íbúum hefur á liðnu ári fjölgað hlutfallslega mest á Vesturlandi í Hvalfjarðarsveit, Eyja- og Miklaholtshreppi og í Borgarbyggð. Á Akranesi má vænta þess að íbúatalan sé við…Lesa meira

true

Flutt í nýtt hús og undirbúa helsta sölutímann

Þessa dagana er mikið um að vera hjá öllum björgunarsveitum landsins í ýmsum verkefnum í aðdraganda hátíðanna en þessi tími ársins er jafnan álagstími hjá félögum í fjáröflunum. Blaðamaður heyrði hljóðið í Elínu Matthildi Kristinsdóttur, formanni björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi. Sveit hennar hefur sannarlega staðið í stórræðum undanfarin ár, flutti í vor inn í nýtt…Lesa meira