Fréttir

true

Axelsbúð fagnar 80 ára afmæli nú í desember

Verslun Axels Sveinbjörnssonar á Akranesi er í daglegu tali kölluð Axelsbúð en var lengst af til húsa á horni Hafnarbrautar og Suðurgötu. Það var 18. desember 1942 sem Axel Sveinbjörnsson stofnaði verslun sína. Vöruúrvalið í Axelsbúð var rómað og var það almannarómur á Akranesi að ef vara fengist ekki í Axelsbúð þá fengist hún hvergi.…Lesa meira

true

Leggja til að opinber rannsókn fari fram á vinnuhælinu á Kleppjárnsreykjum:

Stúlkur máttu þola frelsissviptingu og illa meðferð Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Samfylkingar, flutti í haust ásamt fjölda þingmanna úr flestum flokkum, þingsályktunartillögu þess efnis að fram fari rannsókn á vinnuhælinu á Kleppjárnsreykjum og aðgerðum íslenskra yfirvalda gegn samskiptum íslenskra stúlkna við erlenda hermenn á árum síðari heimsstyrjaldar. Þingsályktun þessa efnis var lögð fram árið 2015…Lesa meira

true

Skilaboðaskjóðan sýnd fyrir fullu húsi í Borgarnesi

Um liðna helgi flutti söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar atriði úr ævintýrasöngleiknum Skilaboðaskjóðunni en sýningarnar fóru fram í nýjum sal Grunnskólans í Borgarnesi. Theodóra Þorsteinsdóttir, deildarstjóri söngleikjadeilarinnar, segir áhuga hafa vaxið síðastliðin fimm ár en nú eru settar upp tvær slíkar söngleikjasýningar á ári. Í tilefni 55 ára afmælis tónlistarskólans var ákveðið að sýna í nýjum sal…Lesa meira

true

Myndleikar Sóleyjar og Michelle í Borgarnesi

Síðastliðinn laugardag sýndu listakonurnar Michelle Bird og Sóley Stefánsdóttir svokallaðan myndspunadúett í Listastofu Michelle í Borgarnesi. Sýninguna nefndu þær Myndleika og/eða myndspunadúett á ferðalagi og þar mátti m.a. sjá verk sem þær hafa unnið sameiginlega. Í spjalli við þær segjast listakonurnar sækja innblástur í aðferðir tónlistarmanna við samsköpun í leit að myndhljómi sem skapi sameiginleg…Lesa meira

true

Vestlenskar konur komu sterkar inn til Fjöruverðlauna

Fjöruverðlaunin eru bókmenntaverðlaun kvenna og trans, kynsegin og intersex fólks á Íslandi og eru veitt á hverju ári. Frá tilnefningunum var greint í Borgarbókasafninu í Grófinni í byrjun vikunnar. Eden, Urta og Tól eru þær bækur sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna í flokki fagurbókmennta að þessu sinni. Bækurnar Kollhnís, Bronsharpan og Héragerði, ævintýri um súkkulaði…Lesa meira

true

Skrifað undir samning um nýtt Skógahverfi – framkvæmdir hefjast á næstu vikum

Í morgun var á bæjarskrifstofum Akraneskaupstaðar skrifað undir verktakasamning við Borgarverk ehf um framkvæmdir í nýju Skógahverfi; gatnagerð og lagnir og yfirborðsmótun í áföngum sem nefnast 3C og 5. Fyrirtækið var með lægsta boð í verkið, en það hljóðaði upp á 1.045.285.000 krónur. Akraneskaupstaður bauð verkið út í samvinnu við Veitur ohf., Ljósleiðarann ehf og…Lesa meira

true

Búrekstur LbhÍ og Pure North Recycling í samstarf

Pure North Recycling og búrekstur Landbúnaðarháskóla Íslands, sem samanstendur af Hvanneyrarbúinu ehf, Tilraunasauðfjárbúinu á Hesti og Hestamiðstöðinni á Mið-Fossum, undirrituðu samstarfssamning sín á milli síðastliðinn mánudag. Sigurður Grétar Halldórsson, framkvæmdastjóri, skrifaði undir fyrir hönd Pure North Recycling og Egill Gunnarsson, bústjóri Hvanneyrarbúsins og Jóhanna Gísladóttir, umhverfisstjóri skrifuðu undir fyrir hönd LbhÍ. Í samningnum felst að…Lesa meira

true

Skinkuhorn – Ida María Brynjarsdóttir

Nýjasti viðmælandi Skinkuhorns er Ida María Brynjarsdóttir en hún er hannyrðakona úr Borgarfirðinum sem hefur vakið eftirtekt á samfélagsmiðlum. Á næstu vikum mun hún halda námskeið í Hússtjórnarskólanum í Reykjavík þar sem hún mun kenna og sýna nemendum sína eigin hönnun. ,,Ég prjóna rosalega mikið og finnst svo gaman að sýna frá því en ég…Lesa meira

true

Lokaverkefni útskriftarnemenda FSN

Útskriftarnemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði kynntu lokaverkefni sín í morgun. Alls voru níu nemendur sem kynntu verkefni sín og voru mörg mjög áhugaverð. Þarna mátti sjá mjög fjölbreytt verkefni eins og íþróttaiðkun barna, stuttmynd og hlaðvarpsþátt. Nemendur skólans eru nú á lokametrum annarinnar enda styttist í útskrift.Lesa meira