
Í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar á þessu ári mun Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid eiginkona hans koma í opinbera heimsókn á Akranes fimmtudaginn 15. desember. Tekið verður á móti forsetahjónunum við Hvalfjarðargöng og þeim fylgt í bæinn. Fyrsti áfangastaður verður aðsetur bæjarskrifstofunnar að Dalbraut 4 þar sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar…Lesa meira








