
Umferðin á Hringvegi (1) í nóvember í ár er ríflega 11% meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram í frétt á vef Vegagerðarinnar. Þar segir að líklegt þyki að einkar gott veðurfar í nóvember þetta árið hafi leitt til aukinnar umferðar. Umferð hefur aukist á öllum vikudögum miðað við nóvember í fyrra.…Lesa meira








