
Eins og vart hefur farið framhjá neinum hefur landsfundur Sjálfstæðisflokksins staðið yfir frá föstudegi í Laugardalshöllinni í Reykjavík. Fundinum lýkur í dag með kosningu í trúnaðarstöður innan flokksins. Byrjað verður að kjósa um formann, en tveir eru í kjöri; Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og formaður flokksins til þrettán ára og Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður og ráðherra.…Lesa meira








