Fréttir

true

Íslandsbanki með hagstæðasta tilboðið

Tilboð Arionbanka, Landsbankans og Íslandsbanka um langtímafjármögnun Akraneskaupstaðar var lögð fram á fundi bæjarráðs 20. október síðastliðinn og bæjarstjóra falið að vinna málið áfram. Á fundi bæjarráðs 27. október samþykkti bæjarráð svo að taka tilboði Íslandsbanka sem var með hagstæðasta tilboðið. Bæjarstjóra var falin úrvinnsla málsins, að ganga frá samkomulagi við Íslandsbanka um fjármögnunina og…Lesa meira

true

Knattspyrnubærinn á leið til landsins

Hið mikla verk, Knattspyrnubærinn – 100 ára knattspyrnusaga Akraness, eftir Björn Þór Björnsson, er á leiðinni til landsins. „Útgáfuteiti vegna bókarinnar verður haldið í næstu viku og vonandi geta sem flestir áskrifendur að ritinu komið þangað og veitt því viðtöku, sem og auðvitað aðrir sem einnig vilja eignast það. Verkið er mjög vandað og þar…Lesa meira

true

Höfundar lásu úr verkum sínum

Í gærkvöldi var bókmenntakvöld í Bókasafni Akraness og var það liður í menningar- og listahátíðinni Vökudögum sem nú standa yfir. Þar lásu nokkrir rithöfundar úr nýjum verkum sínum og mættu yfir hundrað manns til að hlýða á þá. Á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Víðis Jónsdóttir, Benný Sif Ísleifsdóttir, Ari Jóhannesson, Silja Aðalsteinsdóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir…Lesa meira

true

Skallagrímur hafði betur gegn Snæfelli í VÍS bikarnum

Snæfell tók á móti Skallagrími í 16 liða úrslitum VÍS bikars karla í körfuknattleik á sunnudaginn og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfell leikur í 2. deild og Skallagrímur í þeirri fyrstu og eru bæði liðin um miðja deild. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínúturnar í fyrsta leikhluta en síðan juku gestirnir forskotið smátt og…Lesa meira

true

Þykkur karakter í flamenco tónlist

Reynir Hauksson, flamenco gítarleikari, heldur tónleika á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi föstudaginn 4. nóvember kl. 21. Reynir heldur tónleikana ásamt Jeronimo Maya gítarleikara, Einari Scheving trommuleikara, Daniel Caballero dansara og Miguel Jimenez söngvara. ,,Við erum flamenco hljómsveit sem samanstendur af Íslendingum og Spánverjum. Þetta eru strákar sem ég kynntist úti á Spáni en ég átti…Lesa meira

true

Auglýst eftir Breiðafjarðarferju

Vegagerðin hefur nú auglýst útboð á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem óskað er eftir tilboðum í skip til siglinga á Breiðafirði, þ.e. Breiðafjarðarferju. Það skip mun koma í stað ferjunnar Baldurs sem hefur um árabil siglt yfir fjörðinn, milli Stykkishólms og Brjánslækjar, en hún er nú úr sér gengin og stenst ekki nútímakröfur. Á vef Vegagerðarinnar…Lesa meira

true

Hrekkjavaka í leik- og grunnskólum á Akranesi

Það var hrollur í blaðamanni Skessuhorns þegar hann kíkti í heimsókn í morgun í nokkra leik- og grunnskóla á Akranesi. Fyrst var ferðinni heitið í Brekkubæjarskóla, síðan á leikskólana Teigasel og Vallarsel og síðasti viðkomustaður var Grundaskóli. Alls konar verur voru á ferli en blaðamaður náði þó að smella nokkrum myndum af áður en hann…Lesa meira

true

Skagamenn stóðu sig vel á Extramóti SH

Liðna helgi kepptu 15 sundmenn frá Akranesi á Extramóti SH í Hafnarfirði en það mót er eitt það sterkasta sem haldið er hér á landi að hausti. Þar nýta sterkustu sundmenn landsins mótið til þess að undirbúa sig fyrir Íslandsmeistaramótið í lok nóvember. Alls komu 15 verðlaun heim með Skagamönnum að móti loknu, tvö gull,…Lesa meira

true

Ráðherra nýtti daginn vel í nýsköpunarsetrinu á Breið

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og vísindaráðherra kom í heimsókn á Breið nýsköpunarsetur á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Heimsókn hennar var hluti af verkefni um opnar skrifstofur. Þar var hún við störf í samvinnurýminu, kynnti sér starfsemina í húsinu og bauð upp á opna viðtalstíma. Áslaug Arna hitti fyrir fjölmarga aðila í samvinnurýminu, meðal annarra Hlédísi…Lesa meira

true

Rjúpnaveiðitímabilið hefst á hádegi á morgun

Samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar umhverfisráðherra hefst rjúpnaveiðitímabilið á morgun, 1. nóvember. Á þessari vertíð verður veiðin leyfð frá 1. nóvember – 4. desember. Heimilt er að veiða rjúpu frá og með föstudegi til og með þriðjudags, frá klukkan 12 þá daga sem veiði er heimil og skal veiði eingöngu standa yfir á meðan að…Lesa meira