
Komið með vélarvana Baldur til hafnar í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni.
Auglýst eftir Breiðafjarðarferju
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegagerðin hefur nú auglýst útboð á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem óskað er eftir tilboðum í skip til siglinga á Breiðafirði, þ.e. Breiðafjarðarferju. Það skip mun koma í stað ferjunnar Baldurs sem hefur um árabil siglt yfir fjörðinn, milli Stykkishólms og Brjánslækjar, en hún er nú úr sér gengin og stenst ekki nútímakröfur. Á vef Vegagerðarinnar segir að áætlað sé að gera samning um leigu á skipi án áhafnar í fimm mánuði, frá 1. janúar 2023 til 31. maí 2023, með möguleika á að kaupa skipið.\r\n\r\nÍ fjármálaáætlun ríkisins fyrir 2022-2026 eru ekki auknar fjárheimildir til leigu, kaupa eða smíði nýrrar ferju til siglingar yfir Breiðafjörð, en bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar leggur þunga áherslu á að gert verði ráð fyrir kaupum á nýrri ferju í fjárlögum fyrir árið 2023. Þá segir í fundargerð frá 5. fundi bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar, 27. október sl. að bæjarstjórn leggi einnig áherslu á að ríkið hanni og smíði nýja ferju sem hönnuð verði með tilliti til orkuskipta framtíðarinnar. Útboðinu lýkur 25. nóvember.",
"innerBlocks": []
}