
Keith Jordan Jr. var með 23 stig á móti Snæfelli. Ljósm. glh
Skallagrímur hafði betur gegn Snæfelli í VÍS bikarnum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæfell tók á móti Skallagrími í 16 liða úrslitum VÍS bikars karla í körfuknattleik á sunnudaginn og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfell leikur í 2. deild og Skallagrímur í þeirri fyrstu og eru bæði liðin um miðja deild. Jafnt var á með liðunum fyrstu mínúturnar í fyrsta leikhluta en síðan juku gestirnir forskotið smátt og smátt og staðan 15:27 fyrir Skallagrími. Í öðrum leikhluta náði Snæfell að halda í við gestina en náðu ekki að minnka muninn að neinu ráði og staðan í hálfleik 33:49 Skallagrími í vil.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta hittu heimamenn illa, gestirnir gengu á lagið og gerðu nánast út um leikinn. Um miðja vegu var forskot Skallagríms orðið 24 stig og heimamenn ekki líklegir að koma til baka úr þessu. Þegar leikhlutanum lauk var staðan 43:71 fyrir Skallagrími og í fjórða og síðasta leikhlutanum hleyptu gestirnir nágrönnum sínum aldrei nálægt og uppskáru að lokum sanngjarnan sigur, lokatölur 66:95.\r\n\r\nAlex Rafn Guðlaugsson var atkvæðamestur hjá Snæfelli með 17 stig og 15 fráköst, Jason Helgi Ragnarsson var með 16 stig og Aron Ingi Hinriksson með 11 stig. Hjá Skallagrími var Keith Jordan Jr. með 23 stig, Björgvin Hafþór Ríkharðsson var með 21 stig og 11 fráköst og þeir Ragnar Magni Sigurjónsson og Adrien Ricketts með 10 stig hvor.",
"innerBlocks": []
}