
Flamenco gítarleikararnir Reynir Hauksson og Jeronimo Maya en þeir kynntust í Granada á Spáni. Ljósm. Kolla Jóns.
Þykkur karakter í flamenco tónlist
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Reynir Hauksson, flamenco gítarleikari, heldur tónleika á Gamla Kaupfélaginu á Akranesi föstudaginn 4. nóvember kl. 21. Reynir heldur tónleikana ásamt Jeronimo Maya gítarleikara, Einari Scheving trommuleikara, Daniel Caballero dansara og Miguel Jimenez söngvara. ,,Við erum flamenco hljómsveit sem samanstendur af Íslendingum og Spánverjum. Þetta eru strákar sem ég kynntist úti á Spáni en ég átti heima þar í mörg ár. Þeir eru að koma til Íslands í annað skiptið núna,“ segir Reynir í samtali við Skessuhorns.\r\n\r\n<strong>Hafði aldrei séð jafn magnaðan gítarleik\r\n</strong>Hljómsveitin hefur áður haldið sýningu á Hvanneyri. ,,Ég kynnist gítarleikaranum í Granada þar sem ég átti fyrst heima á Spáni, hann er búsettur í Madrid en kom til Granada til að spila. Ég sá hann spila á tónleikum og hafði aldrei séð eins magnaðan gítarleik. Við urðum góðir vinir og fórum að spila reglulega saman þegar hann kom til Granada. Svo flutti ég til Madrid í fyrra og við spilum enn meira saman núna. Ég kynnist svo söngvaranum og dansaranum í gegnum hann. Þeir komu allir til Íslands í júní til að spila, þá héldum við flamenco sýningar í Reykjavík og á Hvanneyri og bjuggum okkur bara til tilefni,“ segir Reynir.\r\n\r\n[gallery columns=\"1\" size=\"full\" ids=\"57569\"]\r\n\r\n<strong>Lærir ekki flamenco í skóla\r\n</strong>Reynir segir mikla kúnst að ná góðu valdi á flamenco tónlist. ,,Ég flutti fyrst til Spánar árið 2016 til að stúdera flamenco en ef maður vill læra flamenco verður maður að fara til Spánar til að upplifa þetta með fólki sem lifist og hrærist í þessu. Það er svolítið öðruvísi snið á flamenco námi en það er minna um skóla og meira þannig að þú finnur bara gítarleikara til að kenna þér. Það er mikilvægt hvernig maður spilar, ekki bara hvað maður spilar. Maður þarf að læra réttu handtökin en svo er líka ákveðin ásetningur í túlkuninni sem gerir flamenco tónlist alvöru. Þetta er eins og sér hreimur á tungumáli, ef þú lærir þetta ekki af Spánverjunum þá hljómar þú eins og útlendingur en það er mikill og þykkur karakter í flamenco og hann verður að koma fram.“\r\n\r\n<strong>Búa til íslenskt flamenco\r\n</strong>Hljómsveitin hefur útsett þekkt íslensk lög í flamenco stíl. ,,Þetta eru í raun tónleikar og sýning. Þetta er mjög fjölbreytt og skemmtilegt prógram, við tökum hefðbundna flamenco dansa og svo spilum við eigin tónsmíðar, sem ég og gítarleikarinn höfum samið saman. Við fáum svo alveg nýjan vinkil þegar við blöndum saman íslenskum lögum við flamenco, spilum sem sagt íslensk lög í flamenco stíl, það alveg svínvirkar. Flamenco er í raun regnhlífarhugtak yfir marga tónlistarstíla sem eiga uppruna í Andalúsíu á Suður-Spáni. Við erum svo að bæta inn nýjum stíl, íslensku flamenco. Við notum íslensk þjóð- og dægurlög, svona sönglög sem við þekkjum. Við tókum t.d. upp okkar útgáfu af Vísum Vatnsenda-Rósu og gerðum tónlistarmyndband við það í vor. Þetta er vel heppnað prógram hjá okkur og tónlistarmennirnir sem ég spila með eru þeir allra færustu í bransanum. Þannig það er gaman að þeir vilji koma til Íslands og spila með Íslendingi.“\r\n\r\nReynir hljómar óviss þegar hann er spurður hvort hann sé fluttur heim til Íslands. ,,Ég kom til Íslands í júní og er a.m.k. ennþá ófarinn, enginn veit sína ævi fyrr en öll er. Spánn er ekkert búið dæmi hjá mér, alls ekki en ég var farin að sakna þess að vera meira á Íslandi. Það voru líka farin að safnast upp fullt af tónlistarverkefnum sem ég þurfti að sinna hér heima. Þannig ég verð hér allavega út árið,“ segir Reynir að lokum.\r\n\r\nhttps://www.youtube.com/watch?v=39_-SlSsaZ4&ab_channel=ReynirHauksson",
"innerBlocks": []
}