Fréttir

true

Vökudagar hefjast í dag

Vökudagar á Akranesi hefjast í dag með setningarathöfn í Tónbergi en þetta er í tuttugasta sinn sem hátíðin er haldin. Setningarathöfnin hefst klukkan 17:00 en þar verða meðal annars menningarverðlaun Akraneskaupstaðar afhent ásamt árlegum umhverfisviðurkenningum. Að setningu lokinni verður líkt og síðustu ár listaganga á Akranesi. Í ár eru það 15 listamenn um allan bæ…Lesa meira

true

Óleyfisframkvæmdir í landi Stálpastaða

Skipulags- og byggingarnefnd Skorradalshrepps hefur falið skipulagsfulltrúa hreppsins að afla gagna varðandi óleyfisframkvæmdir Skógræktarinnar í landi Stálpastaða í Skorradal. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar frá 18. október sl. Upplýsingar liggja fyrir um þau svæði sem búið er að gróðursetja í á Stálpastöðum og gróðursett hefur verið í land sem ekki er ætlað til skógræktar…Lesa meira

true

,,Það er gott að stoppa sig af, sýna okkur sjálfsmildi og setja okkur í fyrsta sæti“

Rætt við Þorgerði Ólafsdóttur, jógakennara og matreiðslumann sem stendur að Me time Iceland ásamt tveimur vinkonum Veiðihúsið við Þverá í Borgarfirði hefur fengið nýtt hlutverk en þar fara fram Me time Iceland helgar þegar húsið myndi annars standa tómt yfir vetrartímann. Þær Guðný Vilhjálmsdóttir, Katrín Sif Einarsdóttir og Þorgerður Ólafsdóttir standa saman að Me time…Lesa meira

true

Stærsta framfaraskref sem stigið hefur verið í íslenskri búfjárrækt

Tímamót þegar DNA greining er látin skera úr um gæði kynbótanauta Fagráð í nautgriparækt fundaði í gær og segja má að um sérstakan hátíðarfund hafi verið að ræða. Til umfjöllunar voru niðurstöður fyrstu keyrslu á erfðamati nauta. Þessi áfangi markar tímamót í íslenskri nautgriparækt þar sem nú tekur við erfðamengisúrval með tilheyrandi umbyltingu á því…Lesa meira

true

Snæfell með sjötta sigurinn í röð

Lið Aþenu/Leiknis/UMFK tók á móti liði Snæfells í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Austurbergi í Breiðholti. Það má með sanni segja að liðin hafi ekki beinlínis verið á skotskónum í leiknum því þau voru bæði rétt svo um og yfir tíu stigin nánast í öllum fjórum leikhlutunum. Í…Lesa meira

true

Hálka og hálkublettir á vegum og götum

Samkvæmt skoðun starfsmanna Vegagerðarinnar í morgun er nú hálka á Bröttubrekku, í botni Hvammsfjarðar, á Vatnaleið og á norðanverðu Snæfellsnesi, en hálkublettir nokkuð víða, m.a. í Borgarfirði, á Holtavörðuheiði, Mýrum, í Dölum og á Fróðárheiði. Því má bæta við að hálkublettir eru einnig innanbæjar í þéttbýliskjörnum, m.a. í Borgarnesi og á Akranesi.Lesa meira

true

Miðasala gengur vel á Heima-Skaga hátíðina

Heima-Skagi er tónlistarhátíð á Akranesi sem haldin er í tengslum við Vökudaga og fer nú fram í annað sinn. Á hátíðinni sem verður haldin laugardaginn 5. nóvember næstkomandi koma fram tíu listamenn og/eða hljómsveitir sem spila tvisvar sinnum hver í jafnmörgum húsum. Því er um að ræða eitt kvöld með alls 20 tónleikum í það…Lesa meira

true

Þykir þrengt að aðkomusvæði Skógræktar Eyrarsveitar

Í tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal í Grundarfirði, sem auglýst var um mitt sumar, hefur íbúðalóðum verið bætt við og nær vestasta lóðin að aðkomusvæði Skóræktarfélags Eyrarsveitar. Efasemdir eru meðal einhverra íbúa um hvort byggja eigi íbúðir á þeim lóðum sem næstar eru aðkomusvæði skógræktarfélagsins m.a. vegna brattlendis og votlendis en einnig vegna…Lesa meira

true

Uppskeruhátíð sauðfjárbænda í Dölum – Myndasyrpa

Félag sauðfjárbænda í Dölum (FSD) stóð fyrir Haustfagnaði á ný eftir tveggja ára hlé um síðustu helgi. Fagnaðurinn slær lokataktinn í haustannir bænda enda er stutt eftir af sláturtíð og vel við hæfi að koma saman fyrsta vetrardag og gera sér glaðan dag. Haldnar voru tvær lambhrútasýningar í sýslunni hjá ungum bændum beggja vegna varnargirðingar…Lesa meira

true

Ingibjörg í Fossatúni vinnur mál gegn veiðifélagi sínu

Hæstiréttur Íslands kvað í dag upp dóm í máli sem Ingibjörg Pálsdóttir í Fossatúni í Borgarfirði áfrýjaði til réttarins frá Landsrétti, en hún taldi að Veiðifélagi Grímsár og Tunguár, sem hún á skylduaðild að sem veiðiréttareigandi við Grímsá, væri óheimilt að leigja út veiðihús félagsins utan hefðbundins laxveiðitíma. Ingibjörg er eigandi jarðarinnar Fossatúns í Borgarbyggð…Lesa meira