
Ráðunautur frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins skar út um hold og gæði hrútanna meðan eigendur halda spenntir í. Hér eru efstu fimm hvítu hyrndu hrútarnir sem voru að Dunki.
Uppskeruhátíð sauðfjárbænda í Dölum – Myndasyrpa
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Félag sauðfjárbænda í Dölum (FSD) stóð fyrir Haustfagnaði á ný eftir tveggja ára hlé um síðustu helgi. Fagnaðurinn slær lokataktinn í haustannir bænda enda er stutt eftir af sláturtíð og vel við hæfi að koma saman fyrsta vetrardag og gera sér glaðan dag. Haldnar voru tvær lambhrútasýningar í sýslunni hjá ungum bændum beggja vegna varnargirðingar þar sem alls tóku um 70 hrútar þátt í flokkum hyrndra, kollóttra og mislitra eða ferhyrndra hrúta. Annars vegar var sýning á föstudeginum að Valþúfu á Fellsströnd í Dalahólfi þar sem Rúna Blöndal og Sæþór Sindri buðu heim í fjárhúsin og hins vegar á laugardeginum að Dunki í Hörðudal þar sem Berghildur og Kári buðu heim.\r\n\r\nÚrslit voru síðan veitt á uppskeruhátíð í Dalabúð að báðum sýningum loknum en þar var einnig verðlaunað fyrir bestu fimm vetra ærnar og best dæmdu gimbralömb haustsins. Besta fimm vetra ærin var til að mynda frá Stóra-Vatnshorni í Haukadal nr. 17-764 undan Toppi 13-964 en heildar BLUP kynbótamatseinkunn hennar var 115,5 og hafði hún verið tvílembd sem gemlingur og alltaf þrílembd eftir það.\r\n\r\nVið verðlaunaafhendinguna var á boðstólnum lambalæri að hætti sauðfjárbænda og í kjölfarið var dansleikur. Vel fór á með bændum þessa helgi enda uppsöfnuð þrá í viðburði líkt og hrútasýningar í góðum félagsskap eftir síðustu tvö ár.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"full\" ids=\"57328,57329,57327,57325,57324,57330\"]",
"innerBlocks": []
}