Þessi mynd var tekin í fyrradag og sýnir svæðið þar sem gert er ráð fyrir íbúðarhúsum neðan við skógræktina, en búið er að moka fyrir fyrstu byggingunum á svæðinu. Inngangur að skógræktinni er í forgrunni til hægri á mynd. Ljósm. tfk

Þykir þrengt að aðkomusvæði Skógræktar Eyrarsveitar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Ölkeldudal í Grundarfirði, sem auglýst var um mitt sumar, hefur íbúðalóðum verið bætt við og nær vestasta lóðin að aðkomusvæði Skóræktarfélags Eyrarsveitar. Efasemdir eru meðal einhverra íbúa um hvort byggja eigi íbúðir á þeim lóðum sem næstar eru aðkomusvæði skógræktarfélagsins m.a. vegna brattlendis og votlendis en einnig vegna þess að hluti gróðurlendis og útivistarsvæðis myndu fara undir hús. Gunnar Njálsson á sæti í stjórn skógræktarfélagsins. Hann kveðst ósáttur við vinnubrögð sveitarfélagsins við skipulagsvinnuna og segir að lóðirnar verði á svæði þar sem nú er aðkomu- og bílastæði að skógræktinni. Skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar segir engin bílastæði vera við aðkomusvæði skógræktarinnar og að nýju lóðirnar fari ekki yfir á aðkomusvæðið heldur liggi upp að því.\r\n\r\n,,Það sést greinilega í þessu ferli, að aðkomusvæði skógræktarinnar er ekki til og hvergi minnst á það í skipulagslýsingum, né að taka eigi tillit til þess að það sé þarna. Heldur hefur hin raunverulega staðsetning þess verið skilgreind sem byggingasvæði og laumað inn á síðustu stigum skipulagsferilsins í lokavinnu Aðalskipulags Grundarfjarðar 2019-2039 án þess að stjórn Skógræktarfélags Eyrarsveitar hafi haft grun eða vitneskju um það,“ segir Gunnar í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nKristín Þorleifsdóttir, skipulagsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar, segir að lóðirnar sem um ræðir nái að aðkomusvæði skógræktarinnar og þrengi því vissulega að því en fari ekki yfir umrætt aðkomusvæði. Það sé því ekki verið að skipuleggja lóðir á aðkomusvæðinu. Í gildandi aðalskipulagi sé svæðið skilgreint sem íbúðarsvæði og sé nú útfært í þessari tillögu um breytingu á deiliskipulagi. ,,Aðkomusvæðið er utan marka deiliskipulagsins og því er það ekki sérstaklega merkt á deiliskipulagsuppdrættinum. Skógræktarsvæðið sjálft er ofan byggðarinnar og þó nokkuð langt frá deiliskipulagssvæðinu og aðkomusvæði skógræktarinnar. Í deiliskipulaginu eru settir fram skilmálar um frágang lóðarinnar sem stendur næst aðkomusvæðinu, samkvæmt þeim þarf að vanda frágang á lóðarmörkunum og hafa þau sem náttúrulegust. Ég skil vel að fólk tengist svona svæðum sterkum tilfinningaböndum þar sem það hefur t.d. gróðursett og átt góðar stundir. Nú er unnið að minniháttar breytingum á tillögunni til þess að bregðast við athugasemdum sem bárust, m.a. er verið að skerpa á skipulagsskilmálum og bætt hefur verið við ákvæðum um að gróður verði færður af svæðinu ef mögulegt er áður en til framkvæmda kemur. Þeim sem gerðu athugasemdir við tillöguna í sumar hefur verið svarað og verður uppfærð tillaga með þessum minnháttar breytingum kynnt á heimasíðu sveitarfélagsins þegar þar að kemur og þeim sem gerðu athugasemdir gert viðvart,“ segir Kristín.",
  "innerBlocks": []
}
Þykir þrengt að aðkomusvæði Skógræktar Eyrarsveitar - Skessuhorn