Nú er hægt að sjá strax og nautkálfur fæðist hvort hann verður góður kynbótagripur eða ekki. Hingað til hefur þurft að fá þá niðurstöðu á grundvelli afkvæmaprófana þ.e. hvernig dætur viðkomandi nauts hafa staðið sig. Slíkt ferli tekur nokkur ár. Nú er sem sagt búið að velja að nota sæði úr þeim 22 nautum á Íslandi sem álitlegust eru á grundvelli DNA mælinga. Í hópi þessara 22 nauta er Marmari 20011 frá Glitstöðum í Norðurárdal sem hér er fárra daga gamall. Ljósm. gs.
Stærsta framfaraskref sem stigið hefur verið í íslenskri búfjárrækt

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tímamót þegar DNA greining er látin skera úr um gæði kynbótanauta\r\n\r\nFagráð í nautgriparækt fundaði í gær og segja má að um sérstakan hátíðarfund hafi verið að ræða. Til umfjöllunar voru niðurstöður fyrstu keyrslu á erfðamati nauta. Þessi áfangi markar tímamót í íslenskri nautgriparækt þar sem nú tekur við erfðamengisúrval með tilheyrandi umbyltingu á því kynbótaskipulagi sem hefur verið við lýði undanfarna áratugi. „Hér er án efa um að ræða eitt stærsta, ef ekki stærsta, framfaraskref sem stigið hefur verið í íslenskri búfjárrækt. Við nálgumst nú lokahnykkinn í ferli sem hófst fyrir um fimm árum síðan og talið var óhugsandi fyrir áratug,“ segir í frétt á nautaskra.is\r\n\r\nEftir að þessum áfanga hefur verið náð mun notkun óreyndra nauta heyra sögunni til í kynbótastarfi í nautgriparækt. „Þannig verður aðeins um að ræða naut í notkun sem verða þá allt niður í rúmlega ársgömul. Jafnhliða því verður tilnefningu sérstakra nautsfeðra hætt og öll naut í notkun munu koma til greina sem feður nautkálfa sem keyptir verða á stöð. Val nautkálfa mun byggja á arfgreiningum og erfðamati þeirra sjálfra þegar kerfið verður að fullu komið til framkvæmda. Það sama má segja að muni eiga við um val nautsmæðra. Það mun byggja á arfgreiningum og erfðamati þeirra sjálfra enda mun meirihluti kúa í framleiðslu verða arfgreindur innan þriggja ára. Þannig styrkja sýnatökur úr kvígum og arfgreiningar þeirra val nautsmæðranna í framtíðinni,“ segir í fréttinni.\r\n\r\nFagráð í nautgriparækt tók á fundinum byltingarkennda ákvörðun um það hvaða naut verða í dreifingu næstu vikur og mánuði. Yngsta nautið sem sett verður í notkun er aðeins 19 mánaða gamalt en annars er að finna í hópnum naut fædd árin 2016 til 2021. Við valið var horft til þess að velja bestu nautin samkvæmt erfðamati og dreifa faðerni þeirra mikið. Þau 22 naut sem verða í dreifingu eru víðs vegar af landinu, meðal annars sex naut af búum á Vesturlandi. Eru þau undan 14 feðrum.\r\n\r\nNaut sem verða til notkunar á næstunni eru:\r\n\r\nBikar 16008 frá Stóru-Hildisey 2 í Landeyjum, f. Bambi 08049, mf. Vindill 05028,\r\nJarfi 16016 frá Helgavatni í Þverárhlíð, f. Bambi 08049, mf. Stíll 04041,\r\nHerkir 16069 frá Espihóli í Eyjafirði, f. Gustur 09003, mf. Baldi 06010,\r\nÞróttur 17023 frá Ósi í Hvalfjarðarsveit, f. Klettur 08030, mf. Þræll 09068,\r\nBúkki 17031 frá Lundi í Lundarreykjadal, f. Dropi 10077, mf. Bolti 09021,\r\nÓs 17034 frá Espihóli í Eyjafirði, f. Úlli 10089, mf. Kambur 06022,\r\nTítan 17036 frá Káranesi í Kjós, f. Úranus 10081, mf. Dynjandi 06024,\r\nÓberon 17046 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum, f. Úranus 10081, mf. Skalli 11023,\r\nBarón 17050 frá Bryðjuholti í Hrunamannahr., f. Úlli 10089, mf. Laufás 08003,\r\nÍtali 17056 frá Stóru-Reykjum í Flóa, f. Úlli 10089, mf. Þáttur 08021,\r\nBeykir 18031 frá Brúnastöðum í Flóa, f. Gýmir 11007, mf. Baldi 06010,\r\nTindur 19025 frá Hvanneyri í Andakíl, f. Sjarmi 12090, mf. Klettur 08030,\r\nSkáldi 19036 frá Skáldsstöðum í Eyjafirði, f. Bárður 13027, mf. Klettur 08030,\r\nKvóti 19042 frá Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, f. Sjarmi 12090, mf. Úlli 10089,\r\nSamson 19060 frá Egilsstöðum á Völlum, f. Steri 13057, mf. Baldi 06010,\r\nMarmari 20011 frá Glitstöðum í Norðurárdal, f. Jörfi 13011, mf. Bambi 08049,\r\nBanani 20017 frá Vatnsenda í Eyjafirði, f. Jörfi 13011, mf. Bambi 08049,\r\nSvarfi 20027 frá Hofsá í Svarfaðardal, f. Jörfi 13011, mf. Bambi 08049,\r\nKeilir 20031 frá Brúnastöðum í Flóa, f. Hálfmáni 13022, mf. Bolti 09021,\r\nGarpur 20044 frá Birtingaholti 1 í Hrunamannahr., f. Jörfi 13011, mf. Bambi 08049,\r\nÓðinn 21002 frá Birtingaholti 4 í Hrunamannahr., f. Kláus 14031, mf. Úlli 10089 og\r\nHákon 21007 frá Skeiðháholti 1 á Skeiðum, f. Ýmir 13051, mf. Fossdal 10040.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []