{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vökudagar á Akranesi hefjast í dag með setningarathöfn í Tónbergi en þetta er í tuttugasta sinn sem hátíðin er haldin. Setningarathöfnin hefst klukkan 17:00 en þar verða meðal annars menningarverðlaun Akraneskaupstaðar afhent ásamt árlegum umhverfisviðurkenningum. Að setningu lokinni verður líkt og síðustu ár listaganga á Akranesi. Í ár eru það 15 listamenn um allan bæ með sýningar eða opnar vinnustofur sem taka á móti á gestum. Þá taka allir grunn- og leikskólarnir þátt í listagöngunni með einum eða öðrum hætti.\r\n\r\nÍ dagskrá Vökudaga sem aðgengileg er inni á<a href=\"https://www.skagalif.is/is/vidburdir/vidburdir/vokudagar-2022-dagskra\"> skagalif.is</a> má sjá hvar sýningarnar og vinnustofurnar eru til húsa.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}